Björt og vel skipulögð fjögurra herbergja, 128,5 fm. horníbúð á 1. hæð. með sérinngangi ásamt stæði í bílageymslu og sérgeymslu. Sérafnotareitur.
*** BÓKAÐU EINKASKOÐUN *Guðrún Hulda Ólafsdóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali í s 8457445 eða á netfanginu gudrun@logheimili.is
Lögheimili Eignamiðlun, Skólabraut 26 Akranesi og Ferrum Fasteignir kynna:
Íbúð 103, Asparskógum 18, 300 Akranesi. Asparskógar 18 - fjölbýlishús með tveimur stigahúsum með lyftu og bílastæðahúsi. Húsið er á tveimur til fimm hæðum með 40 íbúðum. Íbúð 103 er vel skipulögð fjögurra herbergja
horníbúð á 1.hæð með sér inngangi, sérgeymslu, sérafnotareit og sérmerktu bílastæði í bílastæðahúsi. Íbúðin er 128,5 fm., og skiptist í anddyri, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi, annað með þvottarými, hitt inn af svefnherbergi. Íbúðin afhendist fullbúin með vönduðum tækjum. Ljós eru innbyggð að hluta.
Nánari lýsing:Forstofa: Þrefaldur fataskápur. Flísar á gólfi.
Eldhús: er með hvítri vandaðri Nobilia innréttingu frá GKS með brúnni borðplötu. Öll rafræki eru frá AEG, bakaraofn, spanhelluborð, innbyggður kæliskápur með frysti og innbyggð uppþvottavél. Vifta er frá Elica. Blöndunartækin eru frá Tengi. Harðparket á gólfi.
Stofa: Útgengt út á sérafnotareit. Harðparket á gólfi
Svefnherbergi I: Tvöfaldur fataskápur frá GKS. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi II: Tvöfaldur fataskápur frá GKS. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi III: Stór fataskápur frá GKS. Harðparket á gólfi. Baðherbergi inn af herbergi með handlaug, slaerni og sturtu. Flísar á veggjum og gólfi.
Baðherbergi: Hvít innrétting með brúnni borðplötu, handlaug, speglaskápur, upphengt salerni með hæglokandi setu, WALK IN sturtu og handklæðaofn. Blöndunartækin eru frá Tengi. Flísar á veggjum og gólfi.
Sérgeymsla: Sérgeymsla í kjallara, 3,8 fm.
Séerafnotasvæði: Útiljós. Vatnsvarinn tengill.
Bílastæðahús: Bílageymsla er lokuð og upphituð (frostfrí) með loftræstingu. Sjálfvirkur hurðaropnari, ein fjarstýring fylgir hverri eign. Innangengt er í bílageymslu úr stigagöngum.
Sameign: Á jarðhæðinni er hjóla- og vagnageymsla. Rafmagnstöflur og rafmagnsmælar íbúða er staðsett í sameigninni.
Ljósleiðari er tengdur inn í húsið og endar í tengikassa hverrar íbúðar. Netdreifikerfi er í íbúðinni. Ljósbreytir við tengikassa kemur frá símafélagi íbúans.
Húsbyggjandi: Ferrum fasteignafélag
Aðalhönnuður: Al-Hönnun ehf.
Íbúð skilast fullbúin að innan, með öllum gólfefnum.
Sjá nánar um Asparskóga 18:
https://asparskogar.is/Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Hulda Ólafsdóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali í s 8457445 eða á netfanginu gudrun@logheimili.is AKRANES er heilsueflandi bæjarfélag með rúmlega 8.000 íbúa. Þar er fjölskylduvænt umhverfi þar sem lagt er mikið upp úr að veita framúrskarandi þjónustu í skólum og að halda uppi öflugu íþróttastarfi. Stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir.
Ábyrg þjónusta í áratug. Lögheimili Eignamiðlun var stofnuð 2007. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. Ertu í fasteignahugleiðingum, Þarftu að selja ? Lögheimili eignamiðlun veitir afburða þjónustu og eftirfylgni, byggða á áratugareynslu á starfi við fasteignasölu á Íslandi. Vegna mikillar sölu undanfarið getum við bætt við okkur eignum í sölu- eða leigumeðferð. Hringdu núna í síma
630-9000 eða á netfangið logheimili@logheimili.is og pantaðu tíma fyrir þína eign.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Samkvæmt skilmálum hverrar lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.
5. Kaupandi greiðir 0,3% af brunabótamati íbúðar.