Prima fasteignasala kynnir í sölu fjölskylduvænt einbýlishús á einni hæð við Háseylu 7 Innri-Njarðvík í Reykjanesbæ. Húsið er í rólgum botnlanga þar sem stutt er í skóla og leikskóla.
Opið hús verður fimmtudaginn 22 oktober kl 17:15 - 18:00
Aðkoma: Malbikað að bílskúr. Steypt stétt að inngangi í húsið.
Forstofa: Flísar á gólfi. Rúmgóð forstofa með fatahengi.
Þvottaherbergi : Flísar á gólfi. Rúmgóð innrétting, þvottavél og þurrkari í vinnuhæð. Geymsluloft með lúgu er yfir rýminu. Rýmið var endurnýjað 2026.
Gestasnyrting: Flísar á gólfi og veggjum. Innrétting og salerni. Rýmið var endurnýjað 2026.
Hjónaherbergi: (1) Rúmgott með skápum.
Stofa/Borðstofa: Rúmgott svæði í miðju hússins.
Eldhús: Flísar á gólfi. Rúmgóð innrétting sem nær til lofts. Helluborð, ofn í vinnuhæð. Gott borðpláss er í eldhúsinu
Garðskáli / Fjölskyldurými: Með tveimur ofnum, stórir og flottir gluggar, með parketi á gólfi. Útgengi á verönd með skjólveggjum og heitum potti sem snýr í suður. ca 28,4fm er ekki í skráðum fm á húsinu.
Svefnherbergi: (2) Rúmgott með skápum.
Geymsla: Rúmgóð geymsla
Svefnherbergi: (3) Rúmgott með skápum.
Svefnherbergi: (4) Rúmgott með skápum.
Baðherbergi: Flísalagðir veggir. Baðkar með sturtutæki. Góð innrétting með handlaug.
Bílskúr: Rúmgóður bílskúr sem er skráður 44,4fm. Góð lofthæð 2,60 og er innkeyrsluhurðin 2,50m. Heitt og kalt vatn og rafmagn(Það er ný 3 fasa rafmagnstafla í húsinu ásamt því að rafmagnstöflu var bætt við í bílskúr fyrir hleðslustöð og saunu.) Útgengt er úr bakhluta skúrsins á baklóð hússins. Geymsluloft er í skúrnum.
Tvær nýjar þriggja fasa rafmagnstöflur eru í húsinu.
Rafhleðslustöð er við húsið.
Geymsluskúr með stórum hurðum er á milli bílskúrs og húss. Ca 9 fm er ekki í skráðum fm á húsinu.
Lóðin: Lóðin er skráð 920 fm og er vel haldin og snyrtileg. Gras og trjágróður. Góður pallur með skjólveggjum og heitum potti. Vinstra megin við húsið er gott plan með möl þar sem hægt er t.d. að geyma hjólhúsi og slíkt.
Háseyla 7 er fjölskylduvænt einbýlishús með stórri lóð í rólegum botnlanga. Þetta er fjölskylduvænt hús á einni hæð sem er vel staðsett rétt við Akurskóla. Stutt í allla þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir
Óskar Már Alfreðsson lgf í síma 615 8200 eða á oskar@primafasteignir.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.