Bakkatröð 7 - Eyjafjarðarsveit.
Glæsilegt og einstaklega skemmtilega hannað 5 herbergja einbýlishús með bílskúr á einni hæð í Eyjafjarðarsveit - stærð 171,8 m²
Innréttingar eru einstaklega fallegar með mikið skápa og skúffupláss eru hvítar og smíðaðar hjá Tak. Innihurðir eru hvítar.
Harðparket sem er ljóst á alrými, gangi og herbergjum, dökkar flísar á baðherbergi, forstofu og þvottahúsi. Í bílskúr og geymslu er gólf ómálað.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu og stofu í opnu rými, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, bílskúr og geymslu.
Forstofa er með flísum og fallegu hengi.
Eldhús/borðstofa hvít háglans innrétting með dökku granít á borðum, gott skápa- og bekkjarpláss. Falleg eyja með skúffum, sem hægt er að sitja við. Uppþvottavél er innfelld og fylgir með við sölu eignar. Úr eldhúsi er gengið út á steypta suður verönd með timbur skjólveggjum, tengi fyrir heitan pott, hitalagnir eru í steyptri verönd. Grill í útiaðstöðu sem fylgir með við sölu.
Stofa, eldhús og borðstofa eru í opnu rými, með harðparketi á gólfi, innfelldri lýsingu í lofti og fallegum gluggum.
Svefnherbergin eru fjögur, öll með harðparekti á gólfi, hvítum fataskápum og innfelldri lýsingu í loftum, öll rúmgóð.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, hvítri innréttingu, upphengdu salerni, baðkar, sturta, opnanlegur gluggi er þar.
Þvottahús er með flísum gólfi og hvítri innréttingu með skolvask og stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Gengið er í gegnum þvottahúsið þegar farið er inn í bílskúr. Mjög góður skápur er við enda þvottahúss. Opnanlegur gluggi
Geymsla er innaf bílskúr með hurð út í garð. Búið er að leggja lagnir til að setja lítið salerni þar.
Bílskúr þar er rafdrifinn opnari á innkeyrsluhurð og sér gönguhurð. Skápar eru þar. Gólf er ómálað.
Verönd steypt verönd með timburskjólveggjum, grill í útiaðstöðu sem fylgir með við sölu.
Annað
- Hiti er í öllum gólfum
- Aukin lofthæð er í húsinu.
- Innfeld lýsing í stórum hluta af húsinu og einnig úti.
- Steypt mjög falleg verönd með timburskjólveggjum, grill í útiaðstöðu sem fylgir með. Tengi fyrir heitan pott.
- Búið er að leggja hitalangir, lokað kerfi í verönd og stétt fyrir framan hús. Gert ráð fyrir hitalögn í plani sem er ógert.
- Varmaskiptir er á neysluvatni.
- Háaloft er yfir húsi sem nýtist sem geymsla sem er 40m2.
- Örstutt í leik- og grunnskóla og sund.
- Eignin er í einkasölu