Baldur fasteignasali - Sími 450-0000 kynnir í einkasölu: Einstaklega fallega, góða og vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð með tveimur baðherbergjum á fjórðu og efstu hæð í nýlegu (2019) lyftuhúsi að Hafnarbraut 13B, Kársnesi í Kópavogi. Stæði í bílageymslu fylgir. Þetta er einstök eign sem er þess virði að skoða. Smelltu hér til að sækja kynningarbækling með nánari upplýsingum.- Svalalokun
- Fallegt sjávarútsýni frá stofu og öllum herbergjum.
- Innréttingar frá HTH
- Eldhústæki frá Bræðurnir Ormsson, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti.
- Gólfhiti á baðherbergjum
- Hús klætt að utan með vandaðri álklæðningu að hluta
- Leiktæki fyrir börnin eru á baklóð.
Íbúðin skiptist í anddyri, stofu/borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi og þvottahús. Þá fylgir íbúðinni jafnframt geymsla og hlutdeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 132,30 fermetrar, þar af er geymslan 7,8 fermetrar.
Nánari lýsing:
Anddyri: Góður fataskápur, parket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Einstaklega bjart og gott rými með sjávarútsýni. Eldhús, stofa og borðstofa mynda eitt rými. Parket á gólfi. Frá stofunni er útgengt á svalir.
Eldhús: Snyrtileg dökk edhúsinnrétting með eyju og mjög góðu skápaplássi. Bakaraofn í vinnuhæð.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með fataskápum og sér baðherbergi.
Baðherbergi - Hjóna: Flísalagt í hólf og gólf. Walk in sturta, snyrtileg innrétting við vask, handklæðaofn og vegghengt klósett.
Svefnherbergi: Parket á gólfi og fataskápur.
Svefnherbergi: Parket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Walk in sturta, snyrtileg innrétting við vask, handklæðaofn, vegghengt klósett og falleg lýsing bakvið spegil.
Þvottahús: Flísar á gólfi, innrétting og skolvaskur.
Annað:Um er að ræða frábærlega vel staðsetta eign, en stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski - löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / sími 450-0000
Instagram: Baldur fasteignasaliNetverðmat: Smelltu hér til að sjá hvers virði eignin þín er.