Skúlagata 40A, 159.4 fm 3 herbergja íbúð merkt 05-02. Útsýnisíbúð á tveimur hæðum í fallegu og frábærlega vel staðsettu lyftuhúsi í "Skuggahverfinu" með bílskúr. Einstaklega glæsilegt sjávarútsýni og fjallasýn m.a. Esjan, Akrafjall og fl. Tvennar svalir. Íbúðin er háð þeim kvöðum að kaupandi þarf að vera 60 ára eða eldri og félagi í Félagi eldri borgara. Nýleg eldhúsinnrétting frá HTH með innbyggðum stórum ísskáp og frystiskáp. Þá var þak endurnýjað 2023 og settir nýjir þakgluggar í sólskála og hjónaherbergi. Virkilega falleg og skemmileg íbúð á efstu hæð í þessu vinsæla húsi.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is - Bókið skoðun á eigninniEignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 200-3535, nánar tiltekið eign merkt 05-02, birt heildarstærð 159.4 fm. Þar af er íbúðin skráðir 138,8 fm og 20,6 fm bílskúr. Eignin skiptist í: Forstofu, 2 svefnherbergi, 2 stofur, eldhús, sólskáli og 2 baðherbergi.
Nánari lýsing eignarinnar:1 hæð: Komið er inn í flísalagða forstofu með skáp og fatahengi. Á vinstri hönd úr forstofu er geymsla og þvottaherbergi. Úr forstofu er gengið í parketlagt hol. Á vinstri hönd er gestabaðherbergi með nýlegum flísum á gólfi og ljósum flísum á veggjum. Á vinstri hönd úr holi er gengið inn í herbergi/stofu sem er opið inn í alrými. Á hægri hönd er gengið inn samliggjandi borðstofu og eldhús. Eldhús með nýlegri HTH innréttingu með stórum innbyggðum ísskáp og stórum innbyggðum frystiskáp. Þá er einnig ný XL uppþvottavél í innréttingu. Útgengt er á yfirbyggðar svalir sem snúa til vesturs úr borðstofu. Fallegt útsýni úr eldhúsgluggum og af svölum.
2 hæð: Gengið er upp teppalagðar tröppur úr holi. Komið er upp í stóra, opna og bjarta stofu með einstöku útsýni yfir faxaflóann. Úr stofunni er gengið inn í rúmgott svefnherbergi með góðum skápum og sérbaðherbergi með baðkari, nýjar flísar á gólfi og ljósar flísar á veggjum. Við hinn enda stofunar er yfirbyggður, flísalagður sólskáli, úr honum er gengið út á svalir sem snúa til norðurs og eru með glæsilegt útsýni yfir Faxaflóann. Parket er á gólfum að undanskyldu baðherbergi og sólstofu.
20,6 fm bílskúr fylgir eigninni og er keyrt inn í hann frá Skúlagötu. Einnig er hægt að leiga eða kaupa bílastæði í lokuðum bílakjallara.
Sameign íbúa: Á jarðhæð Skúlagötu 40 er stór og rúmgóður samkomusalur. Í kjallara Skúlagötu 40 er aðstaða með heitum potti, sauna klefa, nokkrum líkamsræktartækjum, tveimur sturtum tveimur búningsklefum sem íbúar hafa aðgang að. Sameiginleg bílastæði norðan- og sunnanmegin við húsið og inngangar í húsið. Eitt húsfélag er rekið yrir Skúlagötu 40, 40a og 40b og er í þjónustu hjá Eignaumsjón.