Miklaborg kynnir: fallega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 3. hæð við Flyðrugranda 10 í Vesturbænum. Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð og er með frábæru útsýni yfir KR völlinn.
Allar nánari upplýsingar veitir Íris Arna, löggiltur fasteignasali í síma: 770-0500 eða iris@miklaborg.is
Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu með fataskápum. Beint á móti forstofu er barnaherbergi og á hægri hönd er afar rúmgott alrými, eldhús, borðstofa og stofa. Úr alrými er gengið inn í stórt hjónaherbergi og nýlega endurnýjað baðherbergi.
Alrýmið er mjög rúmgott og bjart með stórum gluggum og skemmtilegu útsýni yfir KR-völlinn. Við hliðina á eldhúsinu er borðstofa.
Eldhúsið er með L-laga innréttingu með uppþvottavél, ofni, helluborði, viftu og innbyggðum örbylgjuofni. Harðparket á gólfi og á veggnum á milli skápa eru hvítar flísar.
Baðherbergið er nýlega endurnýjað og er með fallegum flísum, góðri innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og sturtu.
Hjónaherbergið er mjög stórt með harðparketi á gólfi, fataskáp og útgengi á stórar svalir.
Svalirnar eru út frá hjónaherberginu og eru nokkuð rúmgóðar með útsýni yfir KR völlinn.
Barnaherbergið er nokkuð rúmgott og með harðarketi á gólfi.
Á hæðinni er sameiginlegt þvottahús fyrir hæðina og í sameign er sér geymsla sem og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Eignin er á mjög á eftirsóttum stað í Vesturbænum þar sem stutt er í KR, leikskóla, skóla, sundlaug, verslanir og falleg útivistarsvæði.
Allar nánari upplýsingar veitir Íris Arna, löggiltur fasteignasali í síma: 770-0500 eða iris@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 16/03/2026 | 62.600.000 kr. | 15.000.000 kr. | 70.1 m2 | 213.980 kr. | Nei |
| 24/08/2022 | 40.550.000 kr. | 57.500.000 kr. | 67.8 m2 | 848.082 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
101 | 83,7 | 82,9 | ||
107 | 73,9 | 69,9 | ||
103 | 88,6 | 79,9 | ||
108 | 69,3 | 74,9 | ||
800 | 73,3 | 49,9 | ||
603 | 90 | 63,9 |