Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is
Tjarnarlundur 12e - Vel skipulögð og töluvert endurnýjuð 3ja-4ra herbergja íbúð í fjölbýli á góðum stað í Lundahverfi - stærð 75.8 m²Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og sér geymslu í sameign.
Upprunalega var eignin 3ja herbergja, en eldhúsinnrétting hefur verið færð inn í stofu og gert auka svefnherbergi þar sem eldhúsið var áður.
Forstofan með dúk á gólfi og þar er fataskápur og opið fatahengi.
Eldhúsið og stofan eru í opnu rými. Eldhúsið er með dúk á gólfinu, ljósri L-laga innréttingu með dökkri bekkplötu, efri hornskáð og stæði fyrir uppþvottavél.
Stofan er með dúk á gólfi og þaðan er gengið út á flísalagðar vestur svalir með góðu útsýni.
Svefnherbergin eru þrjú, í einu þeirra er rúmgóður fataskápur. Harðparket er á gólfi í herbergi þar sem eldhúsið var, í hinum er dúkur á gólfi.
Baðherbergið er með dökkum flísum á gólfi, ljósri innréttingu, speglaskáp, walk-in sturtu, wc og handklæðaofni. Pláss er fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherbergi.
Annað: - Nýlegur mynddyrasími er í stigaganginum
- Frábær staðsetning þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, íþróttasvæði KA sem og aðra þjónustu.
- Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er á jarðhæð
- Húsið málað að utan og múrviðgert 2021
- Gler og listar endurnýjað í íbúð og stigagang
- Baðherbergi og eldhús hefur verið endurnýjað
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.