RE/MAX ásamt ÞÓRDÍS DAVÍÐS, lgf & SALVÖR DAVÍÐS, lgf kynna:Einbýlishús á einni hæð í - Þarfnast viðhalds - Gott tækifæri fyrir aðila sem vilja gera upp eign á frábærum stað! Stutt er í alla helstu þjónustu, sund, skóla, leikskóla, Fjölbrautaskóla Garðabæjar og fallegar gönguleiðir.
Um er að ræða190,6 fm einbýlishús á einni hæð á 703,0 fm eignarlóð í þessu vinsæla og fjölskylduvæna hverfi í Garðabæ. Húsið var byggt árið 1961 og er "að mestu" í upprunalegu ástandi, en þarfnast verulegs viðhalds.
Árið 1980 var reist nýtt þak (sem áður var flatt), og gluggar voru einnig endurnýjaðir sama ár. Þakið þarfnast endurnýjunar og leki er til staðar í stofu og sjónvarpsholi, sem gæti bent til raka á fleiri stöðum.SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT SAMSTUNDIS * Aðeins einn eigandi frá byggingu hússins *SMELLTU HÉR og skoðaðu þessa eign í 3-D, þrívíðu umhverfi. 3D = OPIÐ HÚS ÞEGAR ÞÉR HENTAR Ekki þarf sérstakt forrit til að skoða eignina í 3D.Eignin hefur að geyma: forstofu, hol/miðrými, eldhús, búr, stofu, borðstofu, sjónvarpsstofu, fjögur svefnherbergi, salerni, gesta salerni, þvottahús, geymslu og bílskúr.
Samkvæmt skráningum HMS er eignin skráð 190,6 fm og þar af er bílskúrinn 23,3 fm.Árið 1980 var reist nýtt þak (sem áður var flatt), og gluggar voru einnig endurnýjaðir sama ár. Þakið þarfnast endurnýjunar og leki er til staðar í stofu og sjónvarpsholi, sem gæti bent til raka á fleiri stöðum.Nánari lýsing eignar:Forstofa er með flísum á gólfi og fataskápum.
Komið er inn í
miðrými eignar / holið og er parekt á gólfi.
Sjónvarpsstofa er við miðrými hússins og eru flísar gólf, gólfsíðir gluggar og er gengið út á viðarverönd. Tengi er fyrir heitan pott og er einnig útisturta.
Stofa og borðstofa eru björtu opnu rými með gólfsíðum gluggum í stofunni og parketi á gólfi.
Eldhús er við hlið borðstofu. Eldhúsið er meira og minna allt upprunalegt. Innaf eldhúsi er búr og þar innaf er geymsla. Dúkur og korkflísar eru á gólfi.
Fjögur svefnherbergi eru vinstra megin í húsinu og eru þau öll með fataskápum.
Tvö minni herbergin eru með teppi á gólfum en hin tvö stærri herbergin eru með parket á gólfum.
Baðherbergið virðist ekki vera allt í sinum uppruna og er mað baðkari m/sturtugleri, skápum undir og við handlaug. Flísar eru í og við baðkarið og einnig á gólfi.
Gestasalerni er innangengt bæði úr forstofu og þvottahúsi. Upprunalegir skápar á vegg og flísar á gólfi.
Þvottahús er innangengt frá gestasalerni, forstofu við bílskúr og eldhúsi. Flísar eru á gólfi og upp á vegg en þó farnar að losna á veggnum. Vaskur er við hlið tengis við þvottavél.
Bílskúr er ekki með eiginlega bílskúrshurð og hefur verið nýttur sem geymsla. Gólf er steypt.
Hellulögð
innkeyrsla er fyrir framan húsið og yfirbyggt skýli / bílskýli sem er opið.
Ástand eignar:Þakið þarfnast endurnýjunar, og leki er til staðar í stofu og sjónvarpsholi. Ætla mætti að raki gæti verið kominn á fleiri staði og því mælt með nánari skoðun kaupenda t.a.m með fagmanni.
Eignin er að mestu í upprunalegu ástandi og þarfnast gagngerrar endurnýjunar.
Bílskúr hefur verið nýttur sem geymsla og er ekki með hefðbundinni bílskúrshurð.
Staðsetning:Húsið er vel staðsett í rólegu og fjölskylduvænu hverfi í Garðabæ. Stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og falleg útivistarsvæði.
Gott tækifæri fyrir aðila sem vilja gera upp eign á frábærum og stað!Allar nánari upplýsingar veita: Þórdís Davíðs, lgf., í síma 862-1914 eða á thordis@remax.is
Salvör Davíðs, lgf., í síma 844-1421 eða á salvor@remax.is---------------------------------------------------------------
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. sjá nánari upplýsingar um gjaldskrá á heimasíðu lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
ERT ÞÚ í fasteignahugleiðingum? Við kíkjum til þín í spjall !Við höfum starfað við fasteignasölu í yfir áratug.
Við leggjum okkur fram um að veita persónulega og góða þjónustu, viðhalda góðu upplýsingaflæði og vanda vinnubrögð fyrir seljendur og kaupendur. Hjá okkur færðu frítt sölumat og upplýsingar um ferlið án allra skuldbindinga.
Hafðu samband í dag!- Þórdís Björk Davíðsdóttir, lgf í síma 862-1914 eða thordis@remax.is
- Salvör Þóra Davíðsdóttir, lgf í síma 844-1421 eða salvor@remax.is