DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:28. apríl kl 16:15-17:00
Skráð 24. apríl 2026

Stapasíða 13i

RaðhúsNorðurland/Akureyri-603
166.2 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
96.900.000 kr.
Fermetraverð
583.032 kr./m2
Fasteignamat
84.000.000 kr.
Brunabótamat
87.300.000 kr.
BD
Björn Davíðsson
Löggiltur fasteignsali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2150765
Landnúmer
149458
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjaðar að hluta
Raflagnir
Búið er að endurnýja tengla.
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Búið er að endurnýja glugga að norðan og hluta af gleri.
Þak
Var endurnýjað árið 2025. Skipt um það timbur sem þurfti, nýr pappi og nýtt járn
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Tvennar svalir
Upphitun
Hitaveita - Gólfhiti er í forstofu, þvottahúsi, snyrtingu og á baðherbergi.
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
* Annar takkinn á bakaraofninum er óvirkur og ljósið inn í honum. * Sprunga er í skjólvegg á baklóð. * Skemmd er í hurðarstykki við aðalinngang.
Kvöð / kvaðir
sjá í lóðarleigusamningi.
Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Stapasíða 13i - Vel skipulögð 4ra herbergja endaraðhúsaíbúð með bílskúr á vinsælum stað í Síðuhverfi - stærð 166,2 m²


Eignin skiptist með eftirtölum hætti, 
Neðri hæð 68,1 m²:
Forstofa, þvottahús, snyrting, geymsla undir stigapalli, eldhús og stofa.
Efri hæð 76,0 m²: Sjónvarpshol, þrjú svefnherbergi (voru fjögur áður) og baðherbergi.
Bílskúr 22,1 m²

Forstofa er með gráum flísum á gólfi og gólfhita.
Þvottahús er við hliðina á forstofunni með gráum flísum á gólfi, gólfhita og hvítri innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. 
Eldhús, sprautulökkuð innrétting með stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél. Granít er á gólfi, bekk og á milli skápa. Rúmgóður borðkrókur.
Stofa er með dökku parketi á gólfi, gluggum til tveggja átta og hurð út á steypta verönd (2020) með heitum potti/skel og útisturtu. 
Sjónvarpshol er með parketi á gólfi og þar eru loft tekin upp. Þrefaldur skápur og gluggi til vesturs. 
Svefnherbergin eru þrjú en voru fjögur áður, búið er að opna á milli tveggja barnaherbergja en einfalt er að breyta því til baka þar sem hurð er enn til staðar. Parket er á gólfum í svefnherbergjum og fataskápar í tveimur. Úr hjónaherbergi er gengið út á svalir til norðurs sem eru yfir bílskúrnum og úr öðru barnaherberginu er gengið út á steyptar suður svalir.
Baðherbergi var endurnýjað árið 2026. Flísar eru á gólfi og veggjum, eikar lituð innrétting og speglaskápur, upphengt wc, handklæðaofn og walk-in sturta. Blöndunartæki eru svört.
Snyrting er á neðri hæðinni með gráum flísum á gólfi og hluta veggja, gólfhita, upphengdu wc, hvítri innréttingu og innfelldri lýsingu í lofti. 
Geymslurými er undir stigapalli.
Bílskúr er skráður skv. HMS 22,1 m² að stærð og er innangengt í hann í forstofunni. Þar eru gráar flísar á gólfum, bekkur með vask, skápar og rafdrifin innkeyrsluhurð.

Annað
- Gólfhiti er í forstofu, þvottahúsi, snyrtingu og á baðherbergi.
- Rúmgóð steypt verönd með steyptum skjólveggjum og hitalögnum í hluta. Heiturpottur/skel og útsturta. 
- Gluggar á efri hæð að norðan voru endurnýjaðir árið 2021.
- Varmaskiptir.
- Þak var endurnýjað árið 2025 af EM smíði ehf. Skipt var um það timbur sem þurfti, nýr pappi og nýtt járn.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
15/04/201427.950.000 kr.28.500.000 kr.166.2 m2171.480 kr.
15/10/201023.500.000 kr.25.500.000 kr.166.2 m2153.429 kr.
04/11/200823.330.000 kr.25.500.000 kr.166.2 m2153.429 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1978
22.1 m2
Fasteignanúmer
2150765
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02

Myndir (31)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sunnusmári 11
Bílastæði
Skoða eignina Sunnusmári 11
Sunnusmári 11
201 Kópavogur
155.9 m2
Fjölbýlishús
414
737 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 170 204
Bílastæði
Opið hús:25. apríl kl 13:00-14:00
Laugavegur 170 204
105 Reykjavík
93.7 m2
Fjölbýlishús
312
1055 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Skoða eignina Hávegur 58
Skoða eignina Hávegur 58
Hávegur 58
580 Siglufjörður
235.2 m2
Einbýlishús
715
352 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Lofnarbrunnur 1
Opið hús:29. apríl kl 17:00-17:45
IMG_5239.JPG
Skoða eignina Lofnarbrunnur 1
Lofnarbrunnur 1
113 Reykjavík
159.5 m2
Fjölbýlishús
423
720 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin