Fasteignaleitin
Skráð 23. okt. 2025
Deila eign
Deila

Krókeyrarnöf 10

EinbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
246.2 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
160.000.000 kr.
Fermetraverð
649.878 kr./m2
Fasteignamat
122.350.000 kr.
Brunabótamat
152.700.000 kr.
Mynd af Björn Guðmundsson
Björn Guðmundsson
Byggt 2008
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2308306
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd til suðurs og vesturs
Upphitun
Hitaveita/ gólfhiti
Inngangur
Margir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignasalan Byggð 464-9955

Krókeyrarnöf 10 

Um er að ræða mjög vel skipulagt og fallegt fimm herbergja einbýlishús á einni hæð ásamt sambyggðum bílskúr, góð verönd með heitum potti. Eignin er skráð samtals 246,2 fm. að stærð þar af er bílskúr 46 fm. 


Eignin skiptist í forstofu, snyrtingu, gang, eldhús, stofu, baðherbergi, fjögur svefnherbergi (eitt af þeim skráð sem geymsla á teikningum), þvottahús og bílskúr. Geymsluloft er yfir hluta bílskúrs. 

Forstofa er með spónlögðum eikar skápum og flísum gólfi. 
Snyrting er inn af forstofu með flísum á gólfum, innréttingu við vask, upphengdu wc og opnanlegum glugga. 
Gangur er með flísum gólfi, næturlýsingu og innfelldri lýsingu í loftum. 
Eldhús, vönduð sérsmíðuð spónlögð eikar innrétting og eyja með mjög góðu skápa- og bekkjarplássi. Dökkur steinn er á bekkjum og flísar á milli skápa. Stæði er innréttingu fyrir amerískan ísskáp og uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð. Siemens tæki. Lítið búr er inn af eldhús.
Stofa með flísum á gólfi og stórum gólfsíðum gluggum til tveggja átta. Aukin lofthæð er í stofunni og innfelld lýsing í loftum. Fallegur arinn er á vegg milli eldhúss og stofu. Rennihurð er úr stofunni út á steypta verönd. 
Svefnherbergin eru fjögur, öll með parketi á gólfi og sérsmíðuðum spónlögðum eikar fataskápum. Eitt herbergið er skráð sem geymsla á teikningu. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf og með innfelldri lýsingu í lofti. Spónlögð eikar innrétting með mjög góðu skápaplássi, upphengt wc, handklæðaofn, baðkar og rúmgóð sturta með innfelldum tækjum. Útgengt er út af baðherberginu út á verönd með heitum potti.  
Þvottahús er með spónlagðri eikar innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og skolvaska. Útgengt er í þvottahúsinu til norðurs á steypta stétt þar sem eru þvottasnúrur, einnig er innangengt úr þvottahúsi í bílskúrinn. 
Bílskúr er mjög rúmgóður og er þar breið rafdrifinni innkeyrsluhurð og einnig sér inngönguhurð. Flísar eru á gólfi og vönduð lýsing í loftum,  3ja fasa tenglar eru í bílskúrnum. Geymsluloft er yfir hluta bílskúrs og er lofthæðin þar 1,42 m. Ein talía mun fylgja með við sölu eignar til að hífa dót upp á geymsluloftið. Fyrir framan er steypt bílaplan með hitalögnum í að stærstum hluta, lokað kerfi.
Steypt stétt/plan er með norðurhlið hússins og að þvottahúsi. 

Annað
- Húsið var málað að utan sumarið 2024.
- Steypt þak.
- Hvítir plast gluggar eru í húsinu. 
- Þjófa- og brunavarnarkerfi.
- Allar innréttingar eru spónlagðar með eik og smíðaðar af trésmiðjunni Ölri.
- Hiti er í gólfum.
- Innfelld lýsing er í helstu rýmum og aukin lofthæð. 
- Steypt stétt er hringinn í kringum húsið og steypt verönd með steyptum skjólveggjum og heitum potti er á baklóðinni.
- Falleg og vel hirt lóð með fjölbreyttum trágróðri meðal annars eplatré.
- Hitalagnir eru í stærstum hluta af bílaplani, í hluta af stétt við forstofu og gönguleið frá baðherbergi og að heitum potti. 
- Mjög vel skipulögð og fjölskylduvæn eign á rólegum stað.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2008
46 m2
Fasteignanúmer
2308306
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
23.950.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Krókeyrarnöf 10
Bílskúr
Krókeyrarnöf 10
600 Akureyri
246.2 m2
Einbýlishús
524
650 þ.kr./m2
160.000.000 kr.
Skoða eignina Krókeyrarnöf 10
Bílskúr
Krókeyrarnöf 10
600 Akureyri
246.2 m2
Einbýlishús
514
650 þ.kr./m2
160.000.000 kr.
Skoða eignina Brekkugata 36 íbúð 701
Bílastæði
Brekkugata 36 íbúð 701
600 Akureyri
210.7 m2
Fjölbýlishús
524
835 þ.kr./m2
176.000.000 kr.
Skoða eignina Eikarlundur 20
Bílskúr
Skoða eignina Eikarlundur 20
Eikarlundur 20
600 Akureyri
288.9 m2
Einbýlishús
726
553 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin