DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 5. maí 2022

SPÁNAREIGNIR - Las Colinas golf

Nýbygging • FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
172 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
95.700.000 kr.
Fermetraverð
556.395 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Svalir
Pallur
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
610050526
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Stórar svalir og einka þaksvalir með sundlaug
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *GLÆSILEG NÝ PENTHOUSE ÍBÚÐ Á FRÁBÆRU VERÐI Í ALGJÖRUM SÉRFLOKKI Á LAS COLINAS GOLFVELLINUM* *TILBÚIN TIL AFHENDINGAR, MEÐ HÚSGÖGNUM* *SÉR SUNDLAUG Á ÞAKSVÖLUM* *STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU OG SÉR GEYMSLA* *SUNDLAUGARGARÐUR MEÐ SÓLBAÐSAÐSTÖÐU, LÍKAMSRÆKT OG SAUNA*

Sérlega glæsileg og vel hönnuð ný penthouseíbúð á Las Colinas golfsvæðinu með einstöku útsýni yfir golfvöllinn og til sjávar. Las Colinas hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Um 1 klst. akstur suður af Alicante. Rúmgóð íbúð,  tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, opið eldhús með vandaðri innréttingu og góðri tengingu við stórar  svalir með frábæru útsýni og auk þess stór einkaþakverönd með frábæru útsýni og einkasundlaug og þar er einnig salerni með vaski. Matarlyfta gengur upp á þaksvalirnar. Sér bílastæði i bílakjallara ásamt sér geymslu. Sameiginlegur sundlaugargarður með góðri sólbaðsaðstöðu.

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is , sími 00354 893 2495
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is , sími 0034 615 112 869

Lýsing:

Glæsileg íbúð, stórar svalir út frá stofu og einkaþakverönd með einkasundlaug, samtals er um að ræða 172fm. sérafnotarými. Á þakveröndinni er glæsileg aðstaða, sér sundlaug og gott rými til að njóta lífsins með fjölskyldu og vinum. Tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi. Stór stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými með góðri tengingu við stórar svalir. Glæsilegur fallegur sameiginlegur sundlaugargarður með góðri sólbaðsaðstöðu. Líkamsrækt. Sér bílastæði í bílakjallara fylgir ásamt sér geymslu. Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.
Frábært útsýni yfir fallega gróið umhverfi, golfvöllinn og til sjávar.

ÞESSI ÍBÚÐ ER Í ALGJÖRUM SÉRFLOKKI OG ER TILBÚIN TIL AFHENDINGAR STRAX, FULLBÚIN MEÐ HÚSGÖGNUM, ELDHÚSTÆKJUM OG MIÐSTÝRÐU KERFI TIL HITUNAR/KÆLINGAR.

Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum.  Á svæðinu er glæsileg þjónustumiðstöð með líkasmsræktaraðstöðu, fleiri veitingastöðum og ýmissi þjónustu. Algjör lúxus fyrir vandláta. 

Loftkæling/hitun fylgir og auk þess er gólfhiti á baðherbergjum.
Rafmagnstæki í eldhúsi ásamt þvottavél fylgja.
Ný húsgögn fylgja.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d. La Finca, glæsilegur PGA golfvöllur, ásamt Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor og ca. 10 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða flotta eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu
og vinum.

UM ER AÐ RÆÐA GLÆSILEGA PENTHOUSEÍBÚÐ MEÐ ÖLLUM ÞÆGINDUM.
Verð 660.000 evrur (95.700.000ISK miðað við 1Evra=145ISK.)

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca.3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: útsýni, air con, golf, sameiginlegur sundlaugargarður, ný eign, einkasundlaug á þakverönd, húsgögn,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas, 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
610050526

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hnjúkamói 9
Efsta hæð
Hleðslustöð
Opið hús:22. júlí kl 17:00-18:00
Skoða eignina Hnjúkamói 9
Hnjúkamói 9
815 Þorlákshöfn
184.2 m2
Fjölbýlishús
423
703 þ.kr./m2
129.500.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 16 ÞAKÍBÚÐ 502
Bílskúr
Efsta hæð
Opið hús:18. júlí kl 14:00-14:30
Hnjúkamói 16 ÞAKÍbúð 502
815 Þorlákshöfn
157 m2
Fjölbýlishús
413
700 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 16
Bílskúr
Efsta hæð
Opið hús:18. júlí kl 14:00-14:30
Skoða eignina Hnjúkamói 16
Hnjúkamói 16
815 Þorlákshöfn
157 m2
Fjölbýlishús
413
700 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Flétturimi 8
Skoða eignina Flétturimi 8
Flétturimi 8
112 Reykjavík
156.3 m2
Fjölbýlishús
413
530 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin