Falleg þriggja til fimm herbergja íbúð staðsett á efri hæð í fjórbýlishúsi.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, gang, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, bílskúr og geymslu. Hjóla- og vagnageymsla er sameiginleg á efri hæð í sameign.
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur.
Svefnherbergi: Tvö herbergi eru inn af forstofu, þar er harðparket á gólfum, fataskápar í báðum, gluggi til vesturs í öðru og gluggar til vesturs og suður í öðru.
Eldhús: Er í opnu rými með stofu/borðstofu, harðparket á gólfi, falleg dökk viðarinnrétting frá Parka og svartur steinn í borðplötu, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð.
Stofa/borðstofa: Harðparket á gólfi, stórir gluggar til austurs, útgengt á rúmgóðar opnar svalir. Hátt til lofts í alrými og innfeld ljós í lofti.
Gangur: þar er harðparket á gólfi, út frá ganginum eru tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Baðherbergi: Þar eru fallegar flísar á gólfi og hluta veggja, falleg dökk viðarinnrétting frá Parka, svört steinborðplata, stór spegill með stillanlegri lýsingu, handklæðaofn, walk-in sturta með innbyggðri hillu, upphengt salerni.
Svefnherbergi: Harðparket á gólfi, fataskápur og opnanlegur gluggi til austurs.
Hjónaherbergi: Er rúmgott, harðparket á gólfi, góður fataskápur og gluggi til austurs.
Þvottahús: Er með flísum á gólfi, innrétting með plássi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, skápar og vaskur.
Bílskúr: Birt stærð bílskúrs er 29,5 m2, gengið er inn af þvottahúsi, epoxy á gólfi, rafdrifin bílskúrshurð, útgengt er á stigagang í sameign úr bílskúrnum.
Geymsla: Sér 12,8 m2 geymsla er á neðri hæð hússins í sameign.
Verönd: Er fyrir framan hús er steypt og með snjóbræðslu, þar eru lagnir fyrir heitan pott.
Annað:
- Bílastæði eru malbikuð með snjóbræðslu.
- Hleðslustöð fyrir rafbíla er við bílastæði.
- Innbyggð lýsing og hljóðeinangri dúkur í loftum að hluta
- Vaskar og blöndurnartæki frá Tengi.
- Innihurðir eru yfirfelldar hvítar að lit frá Parka.
- Gólfefni og innréttingar frá Parka.
- Gólfhiti er í íbúðum
- Eignin er í einkasölu hjá FS fasteignir.