DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:05. nóv. kl 16:30-17:00
Skráð 5. nóv. 2026

Flókagata 7

HæðHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
155.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
104.900.000 kr.
Fermetraverð
673.732 kr./m2
Brunabótamat
74.200.000 kr.
Byggt 1960
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
20748363
Húsgerð
Hæð
Inngangur
Sérinngangur

Glæsileg 4ra herbergja útsýnishæð með bílskúr við Flókagötu í Hafnarfirði
Virkilega falleg og mikið endurnýjuð 4ra herbergja íbúð á efri hæð með stórkostlegu útsýni, svölum og rúmgóðum bílskúr við Flókagötu í Hafnarfirði.
Eignin er vel skipulögð, björt og snyrtileg og nýtur einstaklega góðrar staðsetningar þar sem stutt er í miðbæ Hafnarfjarðar, skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.

Heildarstærð eignarinnar er 155,7 fm, þar af er íbúðin 120,4 fm og bílskúrinn 35,3 fm. Bílskúrinn býður upp á ýmsa möguleika, meðal annars möguleika á að útbúa stúdíóíbúð.

Eignin hefur verið endurnýjuð í áföngum á undanförnum árum, meðal annars hafa gluggar verið endurnýjaðir að hluta, ofnalagnir og ofnar endurnýjaðir að hluta,
baðherbergi og eldhús endurnýjað ásamt gólfefnum..

Nánari lýsing
Anddyri og stigagangur
:
Komið er inn á bjartan og rúmgóðan neðri stigapall með góðu skápaplássi. Breiður stigi liggur upp á efri stigapall
sem er einnig rúmgóður og býður upp á gott vinnurými við glugga. Stigagangurinn er með fallegum linoleum-dúk.

Stofa og borðstofa:
Björt og falleg stofa og borðstofa með harðparketi á gólfi. Úr stofu er glæsilegt útsýni til suðvesturs, meðal annars til sjávar og Keilis.
Útsýnið setur skemmtilegan svip á eignina og skapar notalega stemningu.

Eldhús:
Bjart og fallegt eldhús með gluggum á tvær hliðar og hvítri innréttingu með góðu skápaplássi. Innfelldur ísskápur og frystir ásamt uppþvottavél.
Flísar eru á gólfi. Á árunum 2023–2026 voru skápar settir upp og aðstaða fyrir þvottavél útbúin í eldhúsinu.

Hjónaherbergi:
Rúmgott hjónaherbergi með skápum og harðparketi á gólfi. Útgengt er úr herberginu á svalir þar sem hægt er að njóta fallegs útsýnis.

Barnaherbergi:
Tvö barnaherbergi, bæði með skápum og harðparketi á gólfi.

Baðherbergi:
Baðherbergið var endurnýjað árið 2020 og eru flísar á gólfi og veggjum. Þar er sturta með glerhurð, góð innrétting með speglaskáp, upphengt salerni og opnanlegur gluggi.

Þvottahús:
Sameiginlegt þvottahús er á jarðhæð. Þar eru hillur og bekkur, flísar á gólfi og sérinngangur frá bílaplani.

Rúmgóður 35,3 fm bílskúr með ál-fellihurð, glugga á gafli og steinklæðningu að utan. Heitt og kalt vatn er til staðar, auk vegghengds salernisskálar og stálvasks.
Bílskúrinn býður upp á ýmsa nýtingarmöguleika og hefur möguleika á að verða að stúdíóíbúð.
Geymsluloft er að hluta yfir bílskúrnum. Einnig er óuppfyllt geymslurými, um 9,8 fm, undir hluta bílskúrsins. Aðgengi að rýminu er um lúgu í gólfi.

Helstu endurbætur samkvæmt upplýsingum seljanda
  • 2010–2011: Þak yfirfarið af fyrri eiganda.
  • 2016: Þakkantar yfirfarnir og endurnýjaðir að hluta. Gluggar á vesturhlið hússins í stofu og barnaherbergjum endurnýjaðir, sem og gluggar í eldhúsi og baðherbergi. Gleri í hjónaherbergi og stigagangi skipt út og gluggapóstar yfirfarnir.
  • 2017: Ofnalagnir og ofnar endurnýjaðir, ásamt lögnum að tengigrind, þó ekki ofnar í barnaherbergjum. Parket endurnýjað.
  • 2020: Baðherbergi endurnýjað, þar með talið flísar. Eldhús endurnýjað.
  • 2021: Gluggar í þvottahúsi endurnýjaðir. Innihurðir endurnýjaðar og stétt við húsið hellulögð.
  • 2022: Gólfhiti og nýjar flísar sett í anddyri, ásamt nýjum ofni og skápum. Steinklæðning bílskúrs máluð að utan.
  • 2023–2026: Skápar settir upp í eldhúsi, innfelldur ísskápur og frystir settir upp, aðstaða fyrir þvottavél útbúin í eldhúsi, glerhurð sett á sturtu og plexígler sett að hluta á svalir.

Innihurðir eru hvítar, yfirfelldar þýskar hurðir frá Birgisson með læsingu í hurðarhúni. Harðparket er á herbergjum og stofurými, flísar á baðherbergi og linoleum-dúkur á stigagangi.

Lóð og aðstaða
Samkomulag er á milli núverandi eigenda um möguleika á að gera pall framan við húsið sem tilheyrir efri hæðinni. Um er að ræða óformlegt samkomulag.
Pallur við sérnotareit neðri hæðar er hvorki samþykktur né teiknaður inn á eignaskiptayfirlýsingu, en samkomulag er um hann á milli núverandi eiganda.

Staðsetning
Eignin er á eftirsóttum stað við Flókagötu í Hafnarfirði. Stutt er í miðbæinn, skóla, leikskóla, verslanir, þjónustu og fallegar gönguleiðir. Hér gefst gott tækifæri til að eignast bjarta og fallega íbúð með góðu útsýni, svölum og rúmgóðum bílskúr á vinsælum stað í bænum.
Falleg eign með mikla kosti, gott útsýni og fjölbreytta nýtingarmöguleika.

Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Ás fasteignasala

Myndir (43)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Breiðvangur 22
Efsta hæð
Skoða eignina Breiðvangur 22
Breiðvangur 22
220 Hafnarfjörður
163,9 m2
Fjölbýlishús
513
542 þ.kr./m2
88.900.000 kr.
Skoða eignina Rauðhella 10
Skoða eignina Rauðhella 10
Rauðhella 10
221 Hafnarfjörður
148,1 m2
Atvinnuhúsn.
11
486 þ.kr./m2
72.000.000 kr.
Skoða eignina Úugata 15
Bílskúr
Skoða eignina Úugata 15
Úugata 15
270 Mosfellsbær
169,9 m2
Raðhús
423
823 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Úugata 13
Bílskúr
Skoða eignina Úugata 13
Úugata 13
270 Mosfellsbær
170,1 m2
Raðhús
423
811 þ.kr./m2
137.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin