Holtsvegur 51 - opið hús þriðjudaginn 15.júlí frá kl 12:00-12:45
Vinsamlegast staðfestið komu á opna húsið í síma 866 7070 eða á stofan@stofanfasteignir.is
STOFAN FASTEIGNASALA kynnir bjarta og rúmgóða 3 herbergja íbúð í lyftuhúsnæði við Holtsveg 51, Urriðaholti Garðabæ.
Fallegt útsýni er frá íbúðinni sem er á 2.hæð í rólegu og snyrtilegu fjölbýli, skráð samtals 110,7 fm.- Stórt og gott alrými
- Fallegt útsýni
- Svalalokun (sett upp 2025)
- Nýtt spanhelluborð og borðplata á eyju (2025)
- Nýjar screen rúllugardínur í stofu og eldhúsi frá Álnabæ (2025)
- Hleðslustöð við húsið
- Lyfta
- Snyrtileg sameign og fallegur vel hirtur garður kringum húsið
Eignin skiptist í forstofu, gang/hol, tvö herbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús, stofu og svalir með svalalokun.
Sérgeymsla í sameign ásamt hjóla- og vagnageymslu.Forstofa með góðum fataskáp og harðparketi á gólfi.
Gangur / hol með harðparketi á gólfi.
Eldhús með fallegri innréttingu frá Brúnás, gler á milli skápa. Eyja með nýju spanhelluborði, bakarofn í vinnuhæð og innbyggð uppþvottavél.
Stofa / borðstofa er einstaklega rúmgóð og björt með fallegu útsýni, harðparket á gólfi. Útgengt er úr borðstofu á rúmgóðar svalir með nýrri svalalokun.
Hjónaherbergi er rúmgott og bjart með góðum fataskápum, pli sol myrkvunargardínur, harðparket á gólfi.
Rúmgott
herbergi með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, falleg innrétting, upphengt salerni og sturta með gleri.
Þvottahús með flísum á gólfi og góðum innréttingum.
Sérgeymsla með hillum, gluggi og málað gólf (7,2 fm).
Rúmgóðar
svalir með svalalokun (13,5 fm).
Innréttingar eru sérsmíðaðar frá Brúnás innréttingum.
Þetta er björt og falleg eign á rólegum og góðum stað í Urriðaholtinu þar sem að stutt er í náttúruna, golfvöll, skóla, verslanir og aðra þjónustu.
Vel hugsað um húsið og sameign snyrtileg.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir
Guðný Ósk í síma 866-7070, gudny@stofanfasteignir.is og Atli Þór í síma 699-5080, atli@stofanfasteignir.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv.gjaldskrá.