Fasteignaleitin
Skráð 22. maí 2025
Deila eign
Deila

Breiðvangur 11

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
123.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
81.700.000 kr.
Fermetraverð
659.935 kr./m2
Fasteignamat
68.150.000 kr.
Brunabótamat
57.050.000 kr.
Mynd af Jón Hjalti Ásmundsson
Jón Hjalti Ásmundsson
Tengiliður seljanda
Eignir í sölu
Byggt 1976
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
F2073881
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer íbúðar
11
Svalir
Inngangur
Sameiginlegur

Rúmgóð íbúð á fyrstu hæð í fjölbýli í norðurbænum í Hafnarfirði. Íbúðin hefur verið endurnýjuð alveg síðustu tvö ár. Þrjú svefnherbergi og tvö salerni. Sérmerkt bílastæði. Góð sérgeymsla.

Íbúð á fyrstu hæð í þriggja hæða fjölbýlishúsi með suðursvölum. Íbúðin er 112,3 fm og sérgeymsla í kjallara 11,5 fm, alls 123,8 fm. Þrjú svefnherbergi og gert ráð fyrir fjórða herberginu á upphaflegri teikningu. Baðherbergi, þvottahús/salerni, eldhús og góð stofa. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara og góður aðgangur að sérgeymslunni þar hjá. Stór sameiginlegur garður. Eitt sérmerkt bílastæði fyrir íbúðina. Sameiginlegar hleðslustöðvar fyrir rafbíla íbúa á bílastæðinu. Íbúðin er nýuppgerð og húsið hefur mikið verið endurnýjað að utan á síðustu árum. Ljósleiðari.

 

Góð staðsetning í norðurbæ Hafnarfjarðar með gott aðgengi að stofnbraut og strætó. Norðurbærinn er afar skemmtilegt svæði og stutt er í alla helstu þjónustu svo sem matvörubúð, strætó, leikskóla, grunnskóla, verslanir og útivistarsvæði. Einnig er ekki langt niður að höfn, í miðbæ Hafnarfjarðar og í sundhöllina.

 

Skipulag íbúðarinnar er þannig:

  • Anddyri með nýjum fataskáp. 
  • Björt stofa með gluggum í suður og útgengi á suðursvalir.
  • Rúmgott eldhús með borðkrók og nýjum innréttingum og flísum.
  • Þvottahús með salerni og nýjum innréttingum og flísum.
  • Aflokanlegur gangur að baðherbergi og þremur svefnherbergjum.
  • Rúmgott baðherbergi með nýjum flísum og innréttingum, wc, baðker með sturtu.
  • Stórt hjónaherbergi með útgengi á suðursvalirnar, nýr stór fataskápur.
  • Tvö barnaherbergi, annað minna, bæði með nýjum fataskápum.
  • Hægt er að útbúa fjórða sérherbergið í stofunni (samkvæmt upprunalegum teikningum).

 

Íbúðin hefur verið gerð upp á síðustu tveimur árum, gólfefni og hurðir frá Birgisson, skápar, innréttingar og flest tækjanna frá IKEA:

  • Gólfefni: Nýtt gólfefni (parket og flísar) á allri íbúðinni.
  • Innihurðir: Nýjar hurðir og karmar (yfirfelldar með felliþröskuldum) og rennihurð fyrir þvottahúsi.
  • Rafmagn og ljós: Ný rafmagnstafla íbúðar og nýir rofar/tenglar, ný ljós og sum með þriggja þrepa ljósstyrk.
  • Gluggar: Nýjar strimlagardínur fyrir gluggum.
  • Eldhús: Ný eldhúsinnrétting og tæki, innbyggðir ofnar og uppþvottavél, spanhelluborð.
  • Þvottahús/salerni: Ný innrétting á þvottahúsi og upphengt wc.
  • Baðherbergi: Ný innrétting á baði og tæki og upphengt wc.
  • Veggir/loft: Íbúðin hefur verið heilmáluð í ljósum litum.
  • Miðstöðvarofnar: Nýir ofnar og ofnlokar.
  • Annað: Nýlegur mynddyrasími. Nýir reykskynjarar (10 ára ending) í öllum herbergjum og eldhúsi.

 

Framkvæmdir á vegum húsfélagsins á síðustu 12 árum:

  • Þak: Þakjárn, þakrennur og niðurfallsrör endurnýjuð (2013).
  • Gluggar: Nær allir gluggar endurnýjaðir á árunum 2015-2021 (á stórum hluta suður- og austurhliða 2015-2016 og á jarðhæð sömu hliða 2018, allir á norður- og austurhlið 2019 og allir á vesturhlið 2021).
  • Útveggir: Allar aðrar hliðar en þær sem snúa að bílaplani klæddar, múrviðgerðar og/eða málaðar á árunum 2018-2021, svalir vesturhliðar endursteyptar árið 2021.
  • Skólp og dren: Drenlögn á garðhlið (2015-2016), skólplagnir undir níunni endurnýjaðar (2024).
  • Hleðslustöðvar: Fjórar sameiginlegar hleðslustöðvar frá e1 settar upp á nýja heimtaug (2023).
  • Ruslatunnuskýli: Tvö sameiginleg skýli fyrir flokkunartunnur sett upp á lóð (2024).
  • Stigagangur í 11: Skipt um teppi og stigagangurinn málaður (2020).
     

Allar hliðar hússins, nema hliðarnar sem snúa að bílaplaninu, hafa verið viðgerðar og málaðar eða klæddar á síðustu árum. Kynntar hafa verið áætlanir um framkvæmdir á þessum hliðum sem eftir eru en ekkert hefur verið samþykkt. Í þeim felst að lagfæra svalir og aðra kalda veggi og útitröppur, gera við múr útveggjanna og mála eða klæða þá ásamt því að skipta um síðustu gluggana á þessum hliðum (kjallaragluggana).

 

Breiðvangur 9-11-13 er þriggja hæða fjölbýlishús með þremur stigagöngum og kjallara undir öllu húsinu. Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni. Byggingarár stigagangs númer 11 er skráð 1976 með sex í búðum. Húsið er staðsteypt, gluggar og hurðir úr timbri, valmaþak með þakjárni. Lóðin er sameiginleg leigulóð í eigu Hafnarfjarðar. Bílastæði eru í sameign en samkomulag er um að hver íbúð eigi eitt merkt stæði. Húsfélag er fyrir húsið allt og annað fyrir sjálfan stigaganginn í númer 11. Innifalið í húsgjöldum er almennur rekstur, allur hitakostnaður, rafmagn í sameign, þrif í sameign, þrif sorptunna og umhirða lóðar.

 

Seljandi sér um sölu fasteignarinnar án milligönguaðila. Nálgast má söluyfirlit og fyrirspurnarform hér á síðunni. Allar nánari upplýsingar veittar í tölvupósti jonhjaltiasm@hotmail.com og í síma 8943834. Tilboðsgerð fer fram með rafrænum hætti.

Finndu frekari upplýsingar um eignina á www.e-fasteignir.is
- Söluyfirlit
- Senda fyrirspurn
- Tilboðsgerð
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
07/02/202361.150.000 kr.56.900.000 kr.123.8 m2459.612 kr.
04/12/201524.500.000 kr.28.600.000 kr.123.8 m2231.017 kr.
17/03/201524.500.000 kr.27.500.000 kr.123.8 m2222.132 kr.
20/02/201321.750.000 kr.21.500.000 kr.123.8 m2173.667 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Álfholt 46
Skoða eignina Álfholt 46
Álfholt 46
220 Hafnarfjörður
109.5 m2
Hæð
413
729 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Skoða eignina Suðurhvammur 16
Skoða eignina Suðurhvammur 16
Suðurhvammur 16
220 Hafnarfjörður
108.5 m2
Fjölbýlishús
412
727 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Skoða eignina Álfaskeið 80
Bílskúr
Skoða eignina Álfaskeið 80
Álfaskeið 80
220 Hafnarfjörður
142.2 m2
Fjölbýlishús
514
583 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Flatahraun 1
Bílastæði
Skoða eignina Flatahraun 1
Flatahraun 1
220 Hafnarfjörður
105.8 m2
Fjölbýlishús
413
774 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin