Hraunhamar fasteignasala og Ársæll Ó Steinmóðsson löggiltur fasteignasali S:896-6076 kynna í einkasölu fallega og vel skipulagða 93 fm 3 herbergja íbúð á 2 hæð merkt 0201 ásamt 2,2 fm sérgeymslu á jarðhæð sem er ekki inni í birtum fm þ.a að heildarstærð er 95,2 fm. Einnig er geymsla innan íbúðar. Úr stofu er útgengt á stórar og góðar suðvestursvalir. Glæsilegt útsýni.
Einstaklega góð staðsetning þ.s grunn og leikskóli eru í örstuttu göngufæri. Stutt er á golfvöll Keilis og fallegar gönguleiðir meðfram sjónum og við Ástjörn. Íþróttasvæði Hauka er í þægilegu göngufæri og eru undirgöngu undir Reykjanesbrautina. Stutt er í fjölbreytta verslun og þjónustu á Völlunum.
Búið er að setja hleðslustöðvar fyrir rafbíla á bílastæði.
Stutt lýsing: hol, geymsla, baðherbergi, stofa, eldhús, hjónaherbergi, svefnehrbegi og geymsla á jarðhæð.
Samkvæmt upplýsingum frá seljanda var endurnýjað harðparket á gólf fyrir utan baðherbergi og geymslu 2024, innihurðir 2024 og ofnar í svefnherbergi, baðherbergi og holi endurnýjað.
Nánari lýsing:
Hol er með nýlegu harðparketi á gólfi og fatahengi.
Stofa er björt og rúmgóð með nýlegu harðparketi á gólfi. Útgengt er á góðar suðvestursvalir með fallegu útsýni.
Eldhús er með nýlegu harðparketi á gólfi. Ljós innrétting með bakarofni í vinnuhæð, helluborði og viftu. Góður borðkrókur með fallegu útsýni.
Hjónaherbergi er rúmgott með nýlegu harðparketi á gólfi og góðum fataskápum.
Svefnherbergi er með nýlegu harðparketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi, ljós innrétting með handlaug, handklæðaofn og sturtuklefi. Tengt er fyrir þvottavél.
Geymsla er innan íbúðar og einnig er 2,2 fm
geymsla á jarðhæð sem fyrir með.
Í sameign er sameiginleg geymsla og hjóla/vagnageymsla.Sumarið 2025 verður farið í framkvæmdir á vegum húsfélagsins Álfholt 56 A-D. Áætlaður kostnaður á íbúðina er kr.1.075.000.- og er inneign í hússjóði u.þ.b. kr.375.000.-.Falleg eign á góðum stað í Hafnarfirði.Allar nánari upplýsingar veitir Ársæll Ó. Steinmóðsson löggiltur fasteignasali á netfangið arsaell@hraunhamar.is eða s. 896-6076Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af veðskuldabréfi - 0% af höfuðstól skuldabréfs.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu kr.68.200.-m.vsk.
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í 41 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.