Fasteignaleitin
Skráð 16. sept. 2025
Deila eign
Deila

Smárarimi 50

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
315.2 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
219.900.000 kr.
Fermetraverð
697.652 kr./m2
Fasteignamat
171.050.000 kr.
Brunabótamat
150.050.000 kr.
SK
Sigríður Kjartansdóttir
Byggt 1993
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2039613
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upphaflegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Upphaflegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Svalir og verönd
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallegt, vandað og vel skipulagt 315,2 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum á einstökum útsýnisstað innst í botnlanga við opið svæði við Smárarima í Grafarvogi.

Húsið er skv. Fasteignaskrá Íslands skráð 315,2 fermetrar að stærð á tveimur hæðum að meðtöldum tvöföldum 51,1 fermetra bílskúr og geymslu sem er 19,1 fermetri, en þar er ekki getið um stækkun neðri hæðar bílskúrs um 31,0 fermetra sem grafnir voru út til að stækka íbúð sem er undir bílskúrnum.
Heildarstærð eignarinnar er því um 345,2 fermetrar og skiptist þannig að íbúðarhúsið er 233,2 fermetrar að stærð, bílskúrinn er 51,1 fermetri og íbúð undir bílskúr er 51,1 fermetri að stærð og er með sérinngangi af baklóð hússins. 

Eignin stendur á 939,0 fermetra glæsilegri lóð á virkilega fallegum og rólegum stað innst í botnlanga á fallegum útsýnisstað við opið svæði.  Stórar flísalagðar svalir eru út af efri hæð hússins á suður og vesturhlið með stiga niður á lóð. Stór og skjólsæl viðarverönd er til suðurs útaf neðri hæð hússins. Hellulögð stétt og upphituð hellulögð innkeyrsla er framan við bílskúr sem rúmar vel þrjá bíla. 

Að innan er húsið virkilega vel skipulagt og mikil lofthæð er á efri hæð þess þar sem eru eldhús, stofur og gestasnyrting. Á neðri hæð eru m.a. hjónaherbergi með baðherbergi innaf, tvö barnaherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi.


Hægt er að bóka einkaskoðun hjá sigridur@fastmark.is / s 692 1540 

Lýsing eignar:
Efri hæð eignarinnar skiptist þannig:

Forstofa, flísalögð og með miklum fataskápum.
Gangur, parketlagður og bjartur.
Eldhús, flísalagt, hvít innrétting með búrskáp, innbyggður ískápur, innbyggð uppþvottavél, eyja með spanhelluborði, tveir ofnar í vinnuhæð, góð borðaðstaða við glugga með sérsmíðuðum bekk og fallegu útsýni. Úr eldhúsi er útgengi á rúmgóðar flísalagðar svalir til suðvesturs með frábæru útsýni og þaðan niður á baklóð hússins. 
Borðstofa, innaf eldhúsi er mjög rúmgóð, björt og parketlögð með gluggum í tvær áttir. 
Samliggjandi setu- og sjónvarpsstofa, mjög rúmgóðar, bjartar og parketlagðar með sérsmíðuðum innréttingum og útgengi á flísalagðar svalir til suðvesturs með frábæru útsýni. 
Gestasnyrting, með glugga, flísalagt gólf og hluti veggja, upphengt wc og innrétting.

Gengið er niður á neðri hæð hússins um steyptan teppalagðan stiga frá gangi efri hæðar.
Neðri hæð hússins skiptist þannig:
Svefnherbergisgangur, rúmgóður og teppalagður.
Þvottaherbergi, með glugga, flísalagt gólf, innrétting með stæðum fyrir vélar í vinnuhæð, fatahengi og útgengi á lóð. 
Barnaherbergi I, parketlagt og mjög rúmgott með fataskápum og gluggum í tvær áttir. Þetta herbergi er á teikningum tvö herbergi. 
Barnaherbergi II, parketlagt og með fataskápum.
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og veggir, upphengt wc, baðkar, flísalögð sturta og innrétting.
Hjónaherbergi, parketlagt og mjög rúmgott með fataskápum á heilum vegg og útgengi á viðarverönd. Baðherbergi er innaf hjónaherbergi. 
Baðherbergi, inn af hjónaherbergi, með glugga, flísalagt gólf og veggir, flísalögð sturta með sturtugleri, innrétting og handklæðaofn.

Bílskúr, sem er 51,1 fermetri að stærð er flísalagður með góðum gluggum, rafmagni, heitu og köldu rennandi vatni, mótor á bílskúrshurð og göngudyrum.  

Aukaíbúð, sem er undir bílskúr og er með sérinngangi af baklóð, er 51,1 fermetri að stærð og skiptist þannig: 
Inngangur, parketlagður. 
Eldhús, parketlagt og með hvítri Ikea innréttingu, rafmagnshelluborði og ísskáp.
Alrými, parketlagt, eitt rými og skipt niður með fataskáp í svefnaðstöðu, stofu og borðaðstöðu.
Baðherbergi, með glugga, upphengt wc, innrétting undir vaski og sturta. 

Húsið, sem einn eigandi er að frá upphafi, er staðsteypt og byggt árið 1993. Húsið hefur alla tíð fengið gott viðhald og er í góðu ástandi að utan. Húsið var málað að utan árið 2019 sem og tréverk og þak.

Lóðin er 939,0 fermetrar að stærð, fullfrágengin með hellulagðri stétt við hlið hússins og hellulagagðri upphitaðri innkeyrslu fyrir framan bílskúr. Stór viðarverönd er á baklóð ásamt hellulögðum stéttum og er lóðin tiltölulega viðhaldslétt með tyrfðum flötum og trjárbeðum.

Staðsetning eignarinnar er mjög góð í grónu og eftirsóttu hverfi í Grafarvogi þaðan sem stutt er út á stofnbraut, fallegar gönguleiðir, leikskóla, skóla, sundlaug, íþróttarsvæði, golfvöll, verslanir o.fl. 

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

Forsendur söluyfirlits: 

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignamarkaðurinn ehf. fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1993
19.1 m2
Fasteignanúmer
2039613
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
8.550.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 1993
51.5 m2
Fasteignanúmer
2039613
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
16.700.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Gerðhamrar 23
3D Sýn
Skoða eignina Gerðhamrar 23
Gerðhamrar 23
112 Reykjavík
295.5 m2
Einbýlishús
1125
744 þ.kr./m2
219.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturhús 20
Bílskúr
Skoða eignina Vesturhús 20
Vesturhús 20
112 Reykjavík
338.5 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
826
650 þ.kr./m2
220.000.000 kr.
Skoða eignina Langagerði 5
Skoða eignina Langagerði 5
Langagerði 5
108 Reykjavík
350 m2
Einbýlishús
86
649 þ.kr./m2
227.000.000 kr.
Skoða eignina Langagerði 5
Skoða eignina Langagerði 5
Langagerði 5
108 Reykjavík
351 m2
Einbýlishús
846
647 þ.kr./m2
227.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin