Fasteignaleitin
Skráð 8. des. 2024
Deila eign
Deila

Skektuvogur 4

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
143.6 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
104.900.000 kr.
Fermetraverð
730.501 kr./m2
Fasteignamat
96.600.000 kr.
Brunabótamat
83.810.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2020
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2506759
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
5
Vatnslagnir
Nýlegar
Raflagnir
Nýlegar
Frárennslislagnir
Nýlegar
Gluggar / Gler
Nýlegt
Þak
Nýlegt
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Nýtt á skrá!  Opið hús - Skektuvogur 4 Reykjavík - fimmtudaginn 12. desember klukkan 18:00 - 18:30.

Efsta hæð og mikil lofthæð!

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna til sölu glæsilega og vel skipulagða 143,6 fermetra 5 herbergja fjölskylduíbúð með rúmlega 11 fermetra svölum í nýlegu 2ja hæða fjölbýli (einungis 10 íbúðir) við Skektuvog 4 í Reykjavík. Íbúðin er á 2. hæð í snyrtilegum fjölbýlishúsakjarna byggðum af ÞG Verk. Aukinn lofthæð yfir allri íbúðinni (295 cm yfir stofurými).

Fjögur svefnherbergi og rúmgott alrými sem rúmar vel setustofu og borðstofu. Sér bílastæði í lokuðum bílakjallara. Útgengi úr stofu á rúmgóðar svalir. Þvottaherbergi innan íbúðar. Stór 19,5 fermetra sérgeymsla í kjallara og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Hellulögð stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu. Sameign er snyrtileg með flísum á sameiginlegri forstofu og teppi á stigagöngum. Lyklalaust (dropakerfi) á hurðum í sameign. 

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu nýlegu fjölskylduhverfi í Vogabyggð í Reykjavík. Leikskóli í göngufjarlægð. Verslun og þjónusta í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum við Elliðaárvoginn. Mikil útivist allt í kring og fallegt umhverfi. Laugardalurinn í næsta nágrenni. Leiktæki og bekkir í eigu húsfélagsins í sameiginlegum garði milli húsa.

Nánari lýsing:

Forstofa/gangur: Er rúmgóð, með harðparketi á gólfi og fataskápum. 
Stofa: Er rúmgóð, með harðparketi á gólfi og gluggum til vesturs. Stofa rúmar mjög vel setustofu og borðstofu. Stofa er opin við eldhús. Útgengi á svalir frá stofu. Loftæhð 295 cm yfir stofurými.
Svalir: Eru rúmgóðar (rúmlega 11 fm.) og snúa til vesturs. Möguleiki að koma fyrir svalalokun þar sem skyggni ef yfir svölum. Harðviður á svalagólfi, glerhandrið og innbyggð lýsing í svalaskyggni.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri eldhúsinnréttingu frá ítalska framleiðandanum Miton. Eldhús er bjart með gluggum til vesturs og norðurs og góðu vinnuplássi. Innbyggður kæliskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél, helluborð, bakaraofn og vifta. Lýsing undir skápum og útloftun.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili, baðkar með sturtutækjum og falleg innrétting við vask með speglaskáp fyrir ofan og óbeinni lýsingu. Handklæðaofn, upphengt salerni og útloftun.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og útloftun.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með harðparketi á gólfi, góðum skápum og gluggum til norðurs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Svefnherbergi III: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Svefnherbergi IV: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til austurs.

Geymsla: Er staðsett á geymslugangi og er 19,5 fermetrar að stærð. Málað gólf, rafmagnstenglar og útloftun.

Bílastæði í lokuðu bílskýli: Vel staðsett. Rafhleðslukerfi komið upp í bílakjallara. Hægt að fá rafhleðslustöð keypta með (rafm. kostnaður rafhleðslustöðvar er inn í uppgefnum kostnaði á húsfélagsgjöldum - um kr. 3.000,- á mánuði).

Hjóla og vagnageymsla: Er staðsett í sameign hússins.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
27/08/202064.400.000 kr.69.900.000 kr.143.6 m2486.768 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Byggt 2020
Fasteignanúmer
2506759
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
E1
Númer eignar
7
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.710.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kuggavogur 15, efsta hæð
Bílastæði
Kuggavogur 15, efsta hæð
104 Reykjavík
127.6 m2
Fjölbýlishús
513
822 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Njörvasund 22
Bílskúr
Skoða eignina Njörvasund 22
Njörvasund 22
104 Reykjavík
126.1 m2
Fjölbýlishús
413
768 þ.kr./m2
96.900.000 kr.
Skoða eignina Arkarvogur 12 (207)
Bílastæði
Arkarvogur 12 (207)
104 Reykjavík
137.5 m2
Fjölbýlishús
524
748 þ.kr./m2
102.900.000 kr.
Skoða eignina Langholtsvegur 132
Bílskúr
Langholtsvegur 132
104 Reykjavík
122.5 m2
Fjölbýlishús
524
775 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin