DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 5. okt. 2026

Engjavegur 19

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
183.9 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
159.000.000 kr.
Fermetraverð
864.600 kr./m2
Brunabótamat
107.800.000 kr.
Byggt 2016
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
23309886
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Sveit í borg - Mjög fallegt og vel staðsett 183,9fm. einbýlishús á tveimur hæðum með sérstæðum bílskúr við Engjaveg í Mosfellsbæ. Um er að ræða finnskt einangrað bjálkahús sem stendur á 1.534 m2 eignarlóð sem einnig er jaðarlóð til austurs. Bókið einkaskoðun - skipti á ódýrari eign koma til greina.

Hér getur þú skoðað eignina í 3 D

Neðri hæð: Komið inn af verönd við inngang í rúmgóða forstofu, frá forstofu er gengt áfram í hol en einnig inn í rúmgóða geymslu/þurrkherbergi og þaðan áfram inn í rúmgott þvottahús með vinnuborði og miklu skápaplássi. Einnig er gengt frá eldhúsi í þvottahús (hringgengt). Eldhús með fallegri innréttingu, borðplötur úr límtré, eyja með nýlegu spanhelluborði, mikið skápapláss, góð borðaðstaða og útgengi út á verönd til vesturs. Stór stofa með mikilli lofthæð, kamína í stofu, útgengi út á verönd. Innaf stofu er herbergi, einnig með útgengi út á verönd, herbergið má t.d. nýta sem borðstofu eða svefnherbergi. Rúmgott baðherbergi með upphengdu salerni, baðkari, walk in sturta, innrétting við vask, handklæðaofn, flísar á gólfi og veggjum að mestu. Rúmgott svefnherbergi með skápum. Á gólfi forstofu, geymslu, þvottahúss og barðherbergis eru flisar, harðparket er á öðrum gólfum neðri hæðar. Hiti er í öllum gólfum neðri hæðar.

Efri hæð: Frá stofu/holi liggur voldugur stigi til efri hæðar með þrepum úr límtré. Efri hæðin, sem er talsvert undir súð, samanstendur af mjög stóru hjónaherbergi með lausum skápum, rúmgóðu salerni, innrétting við vask, handklæðaofn, upphengt WC. Mjög stórt alrými sem í dag er nýtt sem vinnurými og mjög stórt sjónvarpsrými, auðveldlega mætti bæta við svefnherbergi á efri hæð. Öll gólf efri hæðar eru klædd borðum úr furu. Flestir gluggar hússins eru í frönskum stíl, flugnanet eru í öllum opnanlegum gluggafögum. 

Rúmgóður flísalagður bílskúr með rislofti, heitt og kalt vatn, hurð með rafmagnsopnun, steypt aðkeyrsla með hita í. Stór lóð með veröndum í suð - austur og norð-austur, geymslukúr og leiktæki á lóð, heitur pottur með pottastýringum í appi, fjarstýrður sláttuþjarkur fylgir. Öll útiljós eru með sólarsellu. Varmaskiptir fyrir neysluvatn, kalt vatn upphitað í heitt neysluvatn. Heimild er til að stækka/byggja við húsið þar sem húsið fyllir ekki uppí byggingarreit sbr. samþykki byggingarfulltrúa.

Einstök, frábærlega staðsett eign á friðsælum stað með alla helstu þjónustu höfuðborgarsvæðisins innan seilingar, sannkölluð sveit í borg sem sameinar kyrrð sveitasælunnar og þægindi borgarlífsins. Leikskólinn Reykjakot er í göngufæri, skólabíll og strætó ganga þaðan í gunnskóla bæjarins. 

Frekari upplýsingar veitir: 
Kristinn Tómasson Viðskiptafr. MBA
Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali.
Gsm. 820-6797, kristinn@hofdi.is 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Höfði Fasteignasala
http://www.hofdi.is

Myndir (61)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Leirutangi 33
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Leirutangi 33
Leirutangi 33
270 Mosfellsbær
200,5 m2
Einbýlishús
524
847 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Skoða eignina Heiðarbraut 1F
Bílskúr
Skoða eignina Heiðarbraut 1F
Heiðarbraut 1F
230 Reykjanesbær
181,3 m2
Raðhús
514
463 þ.kr./m2
84.000.000 kr.
Skoða eignina Furuhlíð 7
Skoða eignina Furuhlíð 7
Furuhlíð 7
221 Hafnarfjörður
176,2 m2
Raðhús
522
812 þ.kr./m2
143.000.000 kr.
Skoða eignina Bugðutangi 2
Heitur pottur
AUKAÍBÚÐ
Skoða eignina Bugðutangi 2
Bugðutangi 2
270 Mosfellsbær
319,6 m2
Einbýlishús
726
532 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin