RE/MAX og Bjarný Björg Arnórsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna:Vel staðsett, bjart og fjölskylduvænt 4ra herbergja raðhús á einni hæð, samtals 178,4 fm, þar af 43,9 fm bílskúr. Eignin er á eftirsóttum stað í Reykjavík, í göngufæri við golfvöll Golfklúbbs Reykjavíkur að Korpúlfsstöðum, stutt í íþróttamiðstöð í Egilshöll og verslun og þjónustu í Spönginni.
Bjart og fallegt fjölskylduhús sem vert er að skoða!Nánari upplýsingar veitir:
Bjarný Björg Arnórsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 694-2526 eða á netfanginu bjarny@remax.is.SMELLTU HÉR og skoðaðu eignina í þrívídd (3D)Skipulag eignarinnar, Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og bílskúr. Í bílskúr eru einnig þvottahús og gestasalerni.
Nánari lýsing:
Forstofa: Rúmgóð forstofa með fataskápum og harðparketi á gólfi.
Stofa: Opin og björt stofa sem er samtengd borðstofu og eldhúsi í einu rúmgóðu alrými. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Hvít eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi, spanhelluborði, innbyggðri uppþvottavél og ofni í vinnuhæð. Harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með góðum fataskáp. Harðparket á gólfi. Geymsluloft yfir hjónaherbergi.
Barnaherbergi I: Gott herbergi með fataskápum og harðparketi á gólfi.
Barnaherbergi II: Gott herbergi með fataskápum og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með sturtuklefa, baðkari, upphengdu salerni og góðri innréttingu með speglaskáp. Flísar á gólfi og veggjum.
Þvottahús: Þvottaaðstaða er í bílskúr.
Gestasalerni: Auka gestasalerni er í bílskúr.
Milliloft í hálfri hæð (1.7m) yfir hluta stofu og baðherbergis (12fm)
Bílskúr: Rúmgóður, 43,9 fm bílskúr með rafdrifnum hurðaopnara og flísum á gólfi. Geymsluloft yfir bílskúr.
Tvö geymsluloft og eitt milliloft eru í eigninni. Gólfhiti í bílskúr.
Framkvæmdasaga samkvæmt eiganda: Nýtt gólfefni var lagt á íbúð og innréttingar á baði endurnýjaðar árið 2021, flestir gluggar á suðurhlið endurnýjaðir 2022, skipt um allar hurðar og þak málað 2025 og eldhús og tæki endurnýjuð 2026.
Nánari upplýsingar:Bjarný Björg Arnórsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Sími: 694-2526
Netfang: bjarny@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupannaStimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Við fyrstu kaup er stimpilgjaldið 0,4%.
Stimpilgjald af kaupsamningi er 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. er 2.500 kr. fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrár viðkomandi lánastofnana.
Umsýslugjald til fasteignasölu er 69.900 kr. með virðisaukaskatti.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX hvetur því væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand eignarinnar fyrir gerð kauptilboðs og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun eftir þörfum.