LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu vandað og vel byggt einbýli á einni hæð með bílskúr við Strýtusel 22 í Seljahverfinu í Reykjavík þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Eignin er einkar vel staðsett innan hverfis, innst í botnlanga með opið grænt svæði og móann við bakgarðinn. Fallegt útsýni og skjólsæll garður. Eignin er laus til afhendingar fljótlega.
Birt stærð eignar er 196.7 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er 32,7 fm bílskúr. Fasteignamat 2026 er kr 133.850.000,-
Eignin skiptist þrjár rúmgóðar stofur, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvotthús og bílskúr með geymslu í dag en þá má með auðveldum hætti fjölga svefnherbergjum.
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT en annars veiti ég allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða thorey@fastlind.is
Nánari lýsing:
Forstofa með fataskáp, flísar á gólfi.
Eldhús með innréttingu, bakaraofni og helluborði, parket á gólfi og innangengt í þvottahús og borðstofu.
Stofa og borðstofa í björtu og opnu rými með aukinni lofthæð og miklu útsýni, parket á gólfi.
Sjónvarpshol, parket á gólfi.
Hjónaherbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Svefnherbergi II með fataskáp, parket á gólfi.
Svefnherbergi III með fataskáp, mjög rúmgott og útgengt á verönd norðanmegin.
Baðherbergi, flísalagt að mestu með innréttingu, salerni, baðkari og sturtu.
Þvottahús með innréttingu og skolvask, flísar á gólfi og útgengt á verönd norðanmegin.
Bílskúr (32,7 fm) með millilofti, rafdrifin bílskúrshurð, skolvaskur og gönguhurð norðanmegin.
Geymsla innan bílskúrs.
Eignin hefur verið í eigu sömu aðila frá upphafi og því vel um gengin
, lóð fullfrágengin og skjólsæl og
bílaplan og stétt að húsi hellulagt með snjóbærðslu
. Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is
Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.Allir kaupendur okkar fá
Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.