Fasteignaleitin
Skráð 6. mars 2025
Deila eign
Deila

Langahraun 15 Íbúð 101

FjölbýlishúsSuðurland/Hveragerði-810
133.9 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
74.900.000 kr.
Fermetraverð
559.373 kr./m2
Fasteignamat
72.350.000 kr.
Brunabótamat
72.250.000 kr.
Mynd af Kristín Rós Magnadóttir
Kristín Rós Magnadóttir
Löggiltur fasteignasali / Lögfræðingur
Byggt 2022
Garður
Útsýni
Sérinng.
Fasteignanúmer
2509031
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Timburverönd
Lóð
22,73
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
BYR fasteignasala kynnir í einkasölu LANGAHRAUN 15 ÍBÚÐ 101, 810 Hveragerði. Fimm herbergja íbúð á jarðhæð í Kambalandi, nýlegu hverfi í Hveragerði, útsýni, suðurverönd, sérinngangur. Smellið hér fyrir staðsetningu. 
Húsið er byggt árið 2022. Eignin skiptist í íbúð 111.3 m² og geymslu 22.6 m², samtals 133.9 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, fjögur svefnherbergi og baðherbergi, geymsla.

Nánari lýsing: 
Anddyri með tvöföldum fataskáp. 
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengt er frá stofu á timburverönd, til suðurs, útsýni yfir Ölfusið. 
Eldhús með eyju, AEG spanhelluborð og ofn í vinnuhæð, stálvaskur, gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu.
Fjögur svefnherbergi
Hjónaherbergi er inn af stofu/alrými, fjórfaldur fataskápur. 
Barnaherbergin eru þrjú, í einu þeirra er tvöfaldur fataskápur og einfaldur í hinum tveimur.
Baðherbergi, upphengt salerni, sturta, vaskinnrétting, spegill, og handklæðaofn. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherbergi, innrétting með háum skáp og hækkun fyrir tvær vélar. 
Geymsla er á jarðhæð 22.6 m². Lítil innrétting með vaski er í geymslu.
Gólfefni: Harðparket er á öllum rýmum íbúðar nema anddyri og baðherbergi, þar eru flísar. Gólfhiti er í íbúðinni, Danfoss stýringar eru á veggjum.

Langahraun 15 er tveggja hæða fjölbýli,í húsinu eru fimm íbúðir, tvær á neðri hæð og þrjár á efri hæð. 
Húsið er byggt úr forsteyptum samlokueiningum, útveggir eru ljósgráir að lit. Burðarvirki þaks eru forsteyptar holplötur með þakdúk, þak er einhalla.
Hurðir og gluggar eru timburgluggar frá BYKO, svartir að lit. Handrið og svalahandrið eru stálhandrið, álklædd, svört að lit að utanverðu.
Framan við hús er hellulögð gönguleið. Lóð er þökulögð, 11 bílastæði eru í sameign á lóð, þar af eitt sér merkt stæði fyrir hreyfihamlaða.Gert er ráð fyrir möguleika á hleðslustöðvum fyrir rafbíla en hleðslustöðin sjálf er ekki uppsett. Lóð er sameiginleg 1162,3 m² leigulóð frá Hveragerðisbæ.

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 250-9029.

Stærð: Íbúð 111.3 m². Geymsla 22.6 m² Samtals 133.9 m².
Brunabótamat: 72.250.000 kr.
Fasteignamat: 72.350.000 kr
Byggingarár: 2022.
Byggingarefni: Steypa.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
25/04/20222.870.000 kr.63.900.000 kr.133.9 m2477.221 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina LANGAHRAUN 11 ÍBÚÐ 101
Langahraun 11 Íbúð 101
810 Hveragerði
133.9 m2
Fjölbýlishús
514
544 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Brattahlíð 3 2 hæð
Brattahlíð 3 2 hæð
810 Hveragerði
104.3 m2
Fjölbýlishús
32
716 þ.kr./m2
74.700.000 kr.
Skoða eignina Brattahlíð 3 - 2 hæð
Brattahlíð 3 - 2 hæð
810 Hveragerði
104.3 m2
Fjölbýlishús
32
716 þ.kr./m2
74.700.000 kr.
Skoða eignina HEIÐARBRÚN 72
Bílskúr
Skoða eignina HEIÐARBRÚN 72
Heiðarbrún 72
810 Hveragerði
139 m2
Parhús
312
539 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin