***BÓKIÐ SKOÐUN*** Háborg fasteignasala og Þórunn Pálsdóttir lgf. kynna heillandi 267,2 fm einbýli sem stendur á eignarlóð á besta stað í Þingholtunum. Húsið var mjög mikið endurnýjað á árunum 2000-2005 og byggð viðbygging inn í garðinn, en Borgarstjórinn veitti húsinu viðurkenningu árið 2005 vegna vel gerðra endurbóta. Bæði er hægt að nýta húsið sem einbýli eða sem þrjár sjálfstæðar íbúðir með sérinngangi. Fallegur skjólsæll og sólríkur garður er bak við húsið en þar er smáhýsi fyrir garðáhöld ofl.. Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 eða thorunn@haborg.is Skráð byggingarár hússins er 1903, en það er timburhús á hlöðnum grunni. Árið 2000 hófust gagngerar endurbætur á húsinu sem stóðu til 2005, burðarvirki styrkt og útveggir endurbyggðir og einangraðir, ný klæðning, gluggar og gler, nýjar vatns- og rafmagnslagnir lagðar fyri hverja hæð fyrir sig, frárennslislagnir endurnýjaðar, þak endurnýjað bæði þakviður og þakklæðning ásamt einangrun. Snjóbræðsla í tröppum. Lokið var við viðbygginguna árið 2004, en bætt var við allri álmunni sem snýr að garði með fallegum svölum frá efri hæð. Einstaklega vel hefur tekist til með endurbæturnar og viðbygginguna þar sem haldið er í gamla stílinn t.d. útlit rafmagnsefnis valið með hliðsjón af tíðaranda og gamlar eikarþiljur settar á veggi sums staðar á miðhæðinni. Þá var hluti upphaflegu gólfjalanna látnar halda sér. Á miðhæðinni er sérinngangur á norðurhlið hússins. Komið er inn í eikarþiljaða forstofu og þaðan í eikarþiljað hol. Á hægri hönd er stór stofa. Beint af augum er herbergi, sem notað hefur verið sem barnaherbergi, innangengt er úr herberginu í stofuna. Við hlið forstofunnar er baðherbergi með sturtu. Á vinstri hönd úr holi tekur viðbyggingin við. Þar er fyrst eldhús sem var endurnýjað fyrir tveimur árum. Inn af því er björt stofa og borðstofa þaðan sem gengið er beint út í fallegan garðinn. Gólffjalir eru á gólfum. Stigi liggur niður í kjallara. Sérinngangur er á rishæð frá norðurhlið hússins. Komið er í forstofu (sem tengist miðhæðinni en hefur ekki verið notað af núverandi eigendum) og gengið upp tröppur á rishæðina. Á vinstri hönd er falleg stofa þaðan sem gengið er út á góðar austursvalir með útsýni yfir fallegan garðinn. Flísalagt baðherbergi með baðkari og lögnum fyrir þvottavél. Rúmgott eldhús með léttri innréttingu og borðstofa. Inn af henni er setustofa og inn af henni eru tvö svefnherbergi, en inn af eldhúsinu er einnig herbergi sem merkt er geymsla á teikningum. Gegnheil gólfborð eru á hæðinni. Rishæðin er heillandi þar sem víða er opið upp í rjáfur með panilklæddri súð, að öðru leiti eru veggir og loft gifsklædd. Birt stærð hæðarinnar er 81,8 fm en grunnflöturinn er umtalsvert stærri.
Sérinngangur er í kjallaran frá suðurhlið hússins. Komið er í forstofu þar sem á vinstri hönd er þvottahús og lagnarými. Næst er heillandi stofa (með lögnum fyrir eldunaraðstöðu) og á hægri hönd úr henni er opið svefnrými með glugga. Á móti því er flísalagt baðherbergi með glugga og sturtu. Innst er eldhús og tröppur upp á miðhæð. Þaðan er gengið inn í stóra kalda geymslu sem ekki er með fullri lofthæð. Flísar eru á gólfum hæðarinnar og panell á veggjum. Sérstaklega heillandi og skemmtileg eign á þessum vinsæla stað sem bíður upp á fjölbreytta nýtingamöguleika. Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf.s 773-6000 eða thorunn@haborg.is

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.