Opið hús sunnudaginn 29. nóvember frá kl 13:30 til 14:15 - Lindargata 27, 101 Reykjavík - íbúð 0504
Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir: Einstök þriggja herbergja endaíbúð við Lindargötu 27 í Skuggahverfinu á 5. hæð með frábæru útsýni.Íbúðin var tekin í gegn og endurnýjuð árið 2019 og sá Hafsteinn Júlíusson hjá HAF Studio um hönnun.Stórir gluggar og staðsetning íbúðarinnar í enda hússins veita einstaklega góða birtu og fallegt útsýni í fleiri en eina átt. Frábært lyfthús og næg bílastæði við húsið sem tilheyra íbúum.
Eignin er skráð 106,7 fm (þar af geymsla 9,2 fm).
Lýsing eignar:
Forstofa: Rúmgóð forstofa með fataskápum og stórbrotnu útsýni yfir sjóinn og Esjuna.
Setustofa og
borðstofa: Afar björt, falleg og rúmgóð setustofa sem er opin við eldhús. Útsýni yfir miðbæinn. Útgengi á flísalagðar og skjólgóðar svalir sem snúa í suður. Stór endagluggi með góðu útsýni yfir hverfið og á milli húsa út að sjó.
Eldhús: Hvítlökkuð innrétting með góðu skápa- og vinnuplássi. Eldunareyja sem unnt er að sitja við. Kvartssteinn á borðum og eyju. Gluggi með góðu útsýni. Eldhús og stofur mynda saman bjart og opið alrými.
Svefnherbergi 1: Mjög rúmgott herbergi. Parket á gólfi. Gott skápapláss með hvítlökkuðum innréttingum.
Svefnherbergi 2: Rúmgott herbergi með parketi á gólfi. Frábært útsýni til norðurs út á sjó.
Baðherbergi: Einstaklega fallegt, vandað og smekklega innréttað. Terrazzo-flísar á veggjum og gólfi. Flísalögð sturta með glerhlið. Vegginnbyggð blöndunartæki í sturtu og við vask. Dökk viðarinnrétting undir vaski. Hvítur kvartssteinn á baðinnréttingu. Baklýstur hringspegill ofan við vask. Upphengt salerni.
Þvottahús: Innan íbúðar. Flísar á gólfi, hvít innrétting með góðum skápum og hirslum. Tengi fyrir vélar í hentugri vinnuhæð. Skolvaskur.
Íbúðinni fylgir rúmgóð
sérgeymsla (9,2 fm) í kjallara hússins. Sameiginleg
hjólageymsla er á jarðhæð hússins.
15 sameiginleg bílastæði eru á lóðinni framan við húsið sem íbúar deila.
Afar glæsileg og vönduð íbúð á eftirsóttum stað í miðborginni. Örstutt í alla helstu verslun og þjónustu – göngufæri við Hörpuna, Þjóðleikhúsið og annað sem miðborgin hefur upp á að bjóða.Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu olafur@hibyli.is
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / olafur@hibyli.is