Borg fasteignasala kynnir til sölu fallega 100,8 fermetra 3ja herbergja íbúð á vinsælum stað við Laugaveg í Reykjavík. Íbúðin skiptist í forstofu hol, tvö rumgóð svefnherbergi, eldhús og stofu í alrými, baðherbergi og sérgeymslu/þvottahús í sameign.
Nánari lýsing: Komið er inná forstofuhol með parketi. Eldhús og stofa mynda alrými með parketi. Í eldhúsi er hvítlökkuð innrétting, eyja með stein borðplötu. Hjónaherbergi er rúmgott með parketi og fataskápum. Úr hjónaherbergi er gengið út svalir. Barnaherbergi er parketlagt með fataskápum. Baðherbergi er flísalagt með innréttingu og hornbaðkari. Sérgeymsla er í sameign með þvottaaðstöðu. Aukinn lofthæð er í íbúðinni og gólfsíðir gluggar í hluta.
Nánari upplýsingar veitir Brandur Gunnarsson löggiltur fasteignasali-löggiltur leigumiðlari í síma 897-1401 brandur@fastborg.is hjá BORG fasteignasölu.Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði