Guðmundur Þór Júlíusson og Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:Bjarta og rúmgóða 3ja herbergja íbúð á efstu hæð við Hraunbæ í Reykjavík. Tvö svefnherbergi, björt stofa/borðstofa með svölum sem snúa í suður, eldhús og baðherbergi þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Á neðstu hæð hússins er sérgeymsla ásamt sameiginlegri vagna- og hjólageymslu og sameiginlegu þvottahúsi. Eignin er skráð 86,1 fm, þar af er 4,6 fm sérgeymsla á jarðhæð.
Góð staðsetning, stutt í alla helstu þjónustu og í göngufæri við skóla og leikskóla.
Nánari lýsing:
Gengið er inn í sameiginlegan stigagang hússins. Gengið er inn í anddyri sem er með parketi á gólfi.
Eldhús er með parketi á gólfi og góðri innréttingu með fínu skápa og borðplássi. Borðkrókur, helluborð og vifta, bökunarofn í vinnuhæð. Flísar á veggjum.
Stofa og borðstofa eru með parketi á gólfi. Bjart rými með stórum gluggum. Úr stofu/borðstofu er gengið út á svalir sem snúa í suður og með útsýni yfir sameiginlegan garð með bekkjum og leiktækjum.
Svefnherbergisgangur er með parketi á gólfum og þar eru tvö svefnherbergi.
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskápum.
Barnaherbergi er með parketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtu og innrétting með vaski. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara með borðplötu fyrir ofan og efri skápar.
Sér geymsla er á jarðhæð hússins, ásamt sameiginlegri vagna- og hjólageymslu og sameiginlegu þvottahúsi. Af jarðhæð er einnig útgengt út í garð á suðurhlið. Garðurinn er sameiginlegur fyrir hús númer 36-60.
Stutt er í alla helstu þjónustu, og eru sundlaug, íþróttasvæði, skóli og leikskóli allt í göngufæri.
Samkvæmt eigendum :
2010 þakjárn endurnýjað ásamt rafmagstöflu
2021 nýtt parket lagt á íbúðina. Nýjar innihurðar. Baðherbergið með nýjum flísum á gólfi, nýtt klósett og vaskaskápur. Nýjar flísar á veggi í eldhúsinu ásamt hluta af efri skápum. Lofta panill settur í loftið á hjónaherbergi.
2022 Ný útihurð.
2024 Svalir flísalagðar.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma
858-7410 eða gj@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma
899-6753 eða arg@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.