Lifum Heima fasteignasala Borgarnesi kynnir eignina:
Þórólfsgata 14, 310 Borgarnes, 207,5 fm einbýlishús á þremur hæðum með bílskúr og timburverönd með heitum potti ásamt stórkostlegu útsýni.** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.isÞórólfsgata 14 er steinsteypt einbýlishús á þremur hæðum ásamt innbyggðum bílskúr, byggt 1965.
Eignin er 207,5 fm að stærð að meðtöldum 26,4 fm bílskúr, sem hefur verið breytt og er nú stækkun við íbúðarrýmið.
Innan eignar eru tvær forstofur, eldhús, stofa/borðstofa, sex herbergi, tvö baðherbergi, þvottaherbergi, hol og geymsla. Tveir inngangar að framan, á efri og neðri hæð. Steypt bílaplan framan við bílskúr og malarborið plan fyrir framan garðskúr, gengið út á steyptar svalir í bakagarð þar sem er stigi á stóra timurverönd með skjólveggjum. Garðurinn er einstaklega fallegur og þaðan er mikið útsýni.Aðalhæð: Forstofa: Rúmgóð með miklu skápaplassi. Flísar á gólfi.
Alrými: Borðstofa og stofa mynda bjart og rúmgott alrými. Flísar á gólfi utan stofu þar er parket á gólfi.
Eldhús: Sérsmíðuð innrétting með efri og neðri skápum, miklu skápaplássi og góðri vinnuaðstöðu. Gert ráð fyrir uppþvottvél. Borðkrókur. Korkflísar á gólfi.
Miðhæð: Gengið niður nokkrar tröppur frá alrými
Gangur: Útgengt á steyptar svalir þaðan sem útgengt er í bakgarð. Flísar á gólfi
Svefnherbergi: Fjögur svefnherbergi. Sérsmíðaður fataskápur í einu. Parket á gólfum.
Baðherbergi: Innrétting með handlaug. Salerni. Baðkar og sturta. Handklæðaofn. Veggflísar og flísar á gólfi.
Jarðhæð: Forstofa, þvottahús, baðherbergi, tvö íbúðarherbergi, rúmgóður skáli og geymsla. Bílskúrnum hefur verið breytt í íbúðarherbergi og er hluti af íbúðarrými jarðhæðar.
Anddyri: Nýlega smíðað anddyri undir stiga. Steypt gólf
Forstofa: Rúmgóð með opnu fatahengi. Flísar á gólfi.
Þvottahús: Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Baðherbergi: Handlaug. Gólfsalerni. Flísalögð sturta. Flísar á gólfi.
Herbergi: Tvö herbergi. Parket á gólfum.
Miðrými: Timburstigi milli hæða. Innfrarauður saunaklefi. Flísar á gólfi. getur fylgt eftir samkomulagi.
Geymsla: Steypt gólf.
Hiti er í gólfi á aðalhæð og miðhæð utan stofu.Geymsluskúr: Með eigninni fylgir nýlegur 15 fm geymsluskúr (2025).
Lóðin/garðurinn: Húsið stendur á 905 fm gróinni lóð, næg bílastæða fyrir framan hús þar sem bæði er hellulagt og malarborið bílaplan. Rúmgóð timburverönd er í bakgarði með háum skjólveggjum og heitum potti.
Húsið hefur verið nokkuð endurnýjað, m.a. hefur verið skipt um ofna- og neyslulagnir (varmaskiptir), skipt um dælu fyrir gólfhita, eldhúsinnrétting og tæki sem og fataskápar/hengi í forstofum og fataskápur í hjónaherbergi, húsið múrviðgert að utan og málað, þakkantur yfirfarinn og skipt um hann að hluta, gluggar yfirfarnir og málaðir og garðurinn tekinn í gegn.
Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.is