ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu Brekkubraut 7, 230 Reykjanesbær, Skemmtileg og björt íbúð á jarðhæð ásamt bílskúr í góðu tvíbýli.
Frábær staðsetning, miðsvæðis þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Birt stærð 95.1 fm, þar af bílskúr 30 fm.
Húsið er sprunguviðgert og steinað uppá nýtt 2019.
Nýlegar flísar í eldhúsi.
Nýlegt parket á íbúð.
Nýleg rafmagnstafla.
Nánari upplýsingar veitir
Elín Frímannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8674885, tölvupóstur elin@allt.is. Nánari lýsing eignar:Forstofa með flísum á gólfi
Eldhús með góðri innréttingu, búið að setja skúffur þar sem pláss var fyrir uppþvottavél. Flísar á gólfi
Stofa er björt með parketi á gólfi
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðum fataskáp, parket á gólfi
Gangur með parketi á gólfi
Forstofuherbergi með parketi á gólfi
Baðherbergi er með flísum á gólfi, sturtu, innréttingu og salerni
Geymsla/búr við eldhús
Lítil kompa eru innan íbúðar og kyndikompa í sameign með efrihæð.
Bílskúr með þvottaaðstöðu.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.