DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 15. júlí 2026

Trönudalur 1 (202)

FjölbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær/Njarðvík-260
90.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
61.900.000 kr.
Fermetraverð
684.735 kr./m2
Fasteignamat
59.350.000 kr.
Brunabótamat
53.250.000 kr.
Mynd af Margrét Rós Einarsdóttir
Margrét Rós Einarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
2. hæð · efsta
Garður
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
2502224_1
Landnúmer
225950
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Upprunalegt (2018)
Raflagnir
Upprunalegt (2018)
Frárennslislagnir
Upprunalegt (2018)
Gluggar / Gler
Upprunalegt (2018)
Þak
Upprunalegt (2018)
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
22,9 m2 vestur svalir
Lóð
9,64
Upphitun
Hitaveita og gólfhitakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Margrét Rós lgf. og Fasteignasalan TORG kynna í sölu fallega og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð með sérinngangi á efri hæð við Trönudal 1 í Innri-Njarðvík. Um er að ræða bjarta og fjölskylduvæna eign sem skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, sér þvottahús og rúmgott alrými með samliggjandi stofu, borðstofu og eldhúsi. Frá stofu er útgengt á stórar svalir til vesturs. Eignin er staðsett á vinsælum stað þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttasvæði, verslun og falleg útivistarsvæði. Eignin er laus við kaupsamning. Nánari upplýsingar veitir Margrét Rós Löggiltur fasteignasali, í síma 856-5858, tölvupóstur margret@fstorg.is  *** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR *** 

Birt stærð eignar skv. fasteignaskrá HMS er 90,4 m² og eru þeir allir innan íbúðar.

Nánari lýsing
Forstofa er flísalögð með góðum fataskáp.
Alrými með samliggjandi eldhús og stofu, og parket á gólfi.
Stofan er björt og rúmar vel setustofu og borðstofu. Útgengi á stórar 22,9 m2 flísalagðar svalir til vesturs. 
Eldhús er opið við stofu. Hvít innrétting frá HTH, flísalagt á milli efri og neðri skápa og ráð gert fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu. 
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum, parket á gólfi og glugga til vesturs
Barnaherbergi I er bjart og rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.
Barnaherbergi II er skráð sem geymsla skv. teikningum en er með glugga og nýtt sem herbergi. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Falleg innrétting með handlaug og skápaplássi. Upphengt salerni og rúmgóð walk-in sturta með glerþil. 
Þvottahús er innan íbúðar með flíar á gólfi, Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, vinnuborð og skápar á vegg.

Eignin er vel staðsett í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi í Innri-Njarðvík. Í göngufæri eru Stapaskóli, leikskólar, íþróttasvæði og fjölbreytt útivistarsvæði. Þá er stutt í alla helstu þjónustu og góðar samgöngur bæði innan Reykjanesbæjar og til höfuðborgarsvæðisins. Eignin hentar afar vel fjölskyldum sem vilja búa í rólegu og barnvænu umhverfi. 

** HVERS VIRÐI ER ÞÍN EIGN? SMELLTU HÉR **

Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali / s. 856-5858 / margret@fstorg.is
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali / s.773-3532 / adalsteinn@fstorg.is

KÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉR


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (49)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Drekadalur 9L - 02-06
Efsta hæð
Drekadalur 9L - 02-06
260 Reykjanesbær
73.2 m2
Fjölbýlishús
313
777 þ.kr./m2
56.900.000 kr.
Skoða eignina Jötundalur 9-0207
Efsta hæð
Jötundalur 9-0207
260 Reykjanesbær
90.3 m2
Fjölbýlishús
312
748 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Skoða eignina Jötundalur 7B
Efsta hæð
Skoða eignina Jötundalur 7B
Jötundalur 7B
260 Reykjanesbær
108.3 m2
Fjölbýlishús
413
719 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Jötundalur 3B
Efsta hæð
Skoða eignina Jötundalur 3B
Jötundalur 3B
260 Reykjanesbær
99.3 m2
Fjölbýlishús
413
764 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin