Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Á árinu 2021 hækkuðu sérbýli á höfuðborgarsvæðinu um 18% verð á landsbyggðinni um 16,5% og verð íbúða á höfuðborgarsvæðinu um 15%. Frá miðju ári 2020 hækkuðu sérbýli á höfuðborgarsvæðinu hvað hraðast í verði. Ætla má að helsta ástæða þess hafi verið útbreidd heimavinna í faraldrinum og vilji og geta fólks til að stækka við sig af þeim sökum. Íbúðaverð á landsbyggðinni og fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu tók svo að hækka hraðar þegar líða tók á síðasta ár og er því munurinn á íbúðaverði á milli mismunandi tegundar húsnæðis og staðsetningar orðinn minni.
Umsvif á íbúðamarkaði voru með mesta móti á nýliðnu ári en síðustu mánuði hefur þó tekið að hægja á bæði veltu og fjölda þinglýstra kaupsamninga. Ástæða þess er líklega sú að lítið er um framboð á markaði og benda ýmsir aðrir mælikvarðar til þess að eftirspurn á íbúðamarkaði sé enn með mesta móti. Sölutími íbúða er mjög stuttur og enn eru margar íbúðir að seljast yfir ásettu verði. Við teljum forsendur fyrir því að íbúðaverð haldi áfram að hækka á þessu ári en að hækkunartakturinn taki að róast með hækkun stýrivaxta og auknu framboði af íbúðum þegar líður á árið. Við spáum því að íbúðaverð hækki að nafnvirði um tæp 8% á þessu ári, 3,5% árið 2023 og 2,9% árið 2024 en þá hefur jafnvægi myndast á íbúðamarkaði.