Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala kynna:
Mjög vel staðsett íbúð með sérinngangi og bílskúr í litlu fjölbýli með mikla möguleika í suðurhlíðum Kópavogs.
Íbúðin er í þriggja íbúða húsi, margt endurnýjað og hefur íbúðin gott bílastæði við innganginn.
Bílskúrinn er 24,1 fm að stærð, með 2 metra lofthæð, bílskúrshurð og sér gönguhurð einnig inn.
** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.is
Staða húss og endurbóta:
2016 þak endurnýjað
2020/2021 frárennsli endurnýjað frá húsi og út í götu
2020/2021 endurnýjaðar neysluvatnslagnir og hluti ofnalagna, settur gólfhiti í hluta
2020/2021 baðherbergið endurnýjað ásamt eldhúsinu
Staðan á íbúðinni er að helsta sem þarf að huga að eru gluggar íbúðar, bæði gler og timbur. Einnig er lagnaherbergið óklárað í frágangi, þarf að koma því í endanlegt form og þá hægt að setja upp þvottahús og geymslu þar. Einnig þyrfti væntanlega að huga að útskiptum á rest af ofnum og ofnalögnum, það sem eftir var. Gólfefni vantar í litla herbergið. Hurðir eru einnig gamlar.
Þetta er eign sem er töluvert búið að gera en mikið tækifæri fyrir laghentan aðila til að koma sér upp góðri eign á fallegum stað í grónu hverfi.
Nánari lýsing:
Forstofa - er lítil með ofni og steyptu gólfi.
Stofan - er til hægri þegar komið er inn í holið, mjög rúmgóð með góðum gluggum bæði á móti suðri og vestri, parket á gólfi.
Svefnherbergi - er rúmgott með parketi á gólfi.
Þvottahús/geymsla/lagnaherbergi - er óklárað, rúmgott.
Baðherbergi - var endurnýjað 2020/2021, flísalagt með flotuðu gólfi, rúmgóð sturta með flísum á gólfi og afstúkuð með glervegg, upphengt wc og innrétting með vaski.
Eldhús - var einnig endurnýjað 2020/2021, innrétting í U, efri skápar að hluta, gott bekkjarpláss og hólf fyrir einfaldan ísskáp.
Herbergi - lítið herbergi sem hægt er að nota sem skrifstofu eða fyrir ungt barn, vantar gólfefni á það.
Eignaskipti í húsinu:
Íbúð 0001 er með 24,34% hlutdeild í húsi og lóð.
Bílskúrinn sem fylgir þessari eign er með 31,7% hlutdeild í bílskúrshluta.
Í suðurhlíðum Kópavogs er einstaklega fjölskylduvænt hverfi, stutt í alla helstu þjónustu og eru leik- og grunnskólar í göngufæri. Við rætur hlíðarinnar er gott útvistarsvæði sem teygir sig upp undir Mjódd og alveg niður að sjó og út á Kársnesið.
Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lifum Heima fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.