DV logo
Fasteignaleitin

Húsnæðismarkaður við suðumark

02 mars 2022
Mynd af Halldór Kári Sigurðarson
Halldór Kári Sigurðarson
Hagfræðingur Húsaskjóls
Seðlabanki Íslands hækkaði meginvexti sína um 75 punkta þann 9. febrúar sl. líkt og væntingar stóðu til og nú standa vextirnir í 2,75%. Stýrivextir bankans hafa ekki verið hærri síðan fyrir heimsfaraldurinn. Útlánastofnanir hafa brugðist við með hækkun útlánsvaxta og nú eru fastir vextir til þriggja ára á óverðtryggðum lánum á bilinu 4,8-5,7%. Vaxtahækkanir eru þess eðlis að það tekur tíma fyrir þær að byrja að hafa áhrif á markaðinn. Þar af leiðandi kemur ekki á óvart að þrátt fyrir vaxtahækkunina hefur verðbólga aukist og húsnæðisverð haldið áfram að hækka hratt.
Húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði nefnilega um 1,7% í janúar sem þýðir að árshækkunartakturinn er kominn upp í 20,3%. Undirritaður telur að árshækkunartakturinn sé við það að ná hámarki en áfram er þó að vænta 1-1,5% verðhækkunar á mánuði horft fram á vor. Ástæðan fyrir því er einfaldlega sú að vaxtahækkanir koma ekki til með að leysa þann framboðsskort sem er á markaðnum.
Heimildir: Þjóðskrá Íslands og Greiningardeild Húsaskjóls
Enn dregur úr fjölda eigna til sölu en það voru aðeins 440 íbúðir til sölu á höfuðborgarsvæðinu í byrjun febrúar sem er 27% færri íbúðir en fyrir tveimur mánuðum síðan. Tölur HMS sýna að af þeim fáu íbúðum sem eru til sölu mætti flokka um fjórðung til lúxusíbúða, þ.e. fjórðungur íbúða er með ásett verð yfir 100 milljónum króna. Þetta er um 4-5 sinnum hærra hlutfall lúxusíbúða en í maí 2020 og þar með ljóst að vandi þeirra sem leita sér að íbúð undir 100 m.kr. er enn meiri en framboðstölurnar gefa til kynna.
En verður þessi framboðsskortur bara viðvarandi? Það þarf ekki að vera.
Íbúðum er úthlutað byggingaári þegar þær eru komnar á byggingarstig 4 en þá er bygging þeirra rúmlega hálfnuð. Að gefnum 2 ára byggingartíma má því áætla út frá tölum Þjóðskrár að tæplega þrjú þúsund fullbúnar íbúðir komi inná á markaðinn árið 2022 þegar litið er á landið í heild sinni. Það er um 40% meira framboð en í meðalári frá aldamótum.
Heimildir: Þjóðskrá Íslands og Greiningardeild Húsaskjóls
Frá því eftir hrun hefur fjöldi íbúa sem eru 25 ára eða eldri á hverja íbúð vaxið jafnt og þétt. Þessi þróun er ein af meginástæðunum fyrir þeim framboðsskorti sem nú ríkir. Árið 2021 markar fyrsta árið eftir hrun þar sem unnið er á skortinum. Hvort þær íbúðir sem eru í byggingu duga til að halda í við eftirspurn eða vinna á skortinum ræðst aðallega af því hverjir fólksflutningar til landsins verða.
Heimildir: Þjóðskrá Íslands og Greiningardeild Húsaskjóls
Ef íbúum mun halda áfram að fjölga um u.þ.b. 7 þúsund manns á ári líkt og undanfarin 6 ár þá þarf að byggja um 3000 íbúðir á ári bara til að halda í við aukna eftirspurn og meira en það til að vinna á skortinum.
Horft fram á við mun undirliggjandi framboðsskortur áfram ýta undir verðhækkanir þrátt fyrir að hækkandi vextir muni draga úr getu kaupenda til að skuldsetja sig. Þá er mikilvægt að íbúðum í byggingu fjölgi nokkuð, a.m.k. næstu 2-3 árin til að koma jafnvægi á markaðinn.

Vinsælar eignir

Skoða eignina Vallengi 15
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Vallengi 15
Vallengi 15
112 Reykjavík
88,7 m2
Fjölbýlishús
312
844 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurhvammur 4
Bílskúr
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Suðurhvammur 4
Suðurhvammur 4
220 Hafnarfjörður
267,4 m2
Einbýlishús
825
587 þ.kr./m2
157.000.000 kr.
Skoða eignina Drekavellir 36
3D Sýn
Skoða eignina Drekavellir 36
Drekavellir 36
221 Hafnarfjörður
175,6 m2
Fjölbýlishús
423
654 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Álfaheiði 2b
Hleðslustöð
Skoða eignina Álfaheiði 2b
Álfaheiði 2b
200 Kópavogur
66,7 m2
Fjölbýlishús
312
958 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Skoða eignina Hvammabraut 12
Skoða eignina Hvammabraut 12
Hvammabraut 12
220 Hafnarfjörður
136,3 m2
Fjölbýlishús
615
535 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Ferjuvað 9
Skoða eignina Ferjuvað 9
Ferjuvað 9
110 Reykjavík
72,7 m2
Fjölbýlishús
211
385 þ.kr./m2
28.000.000 kr.
Skoða eignina Vallarás 2
Skoða eignina Vallarás 2
Vallarás 2
110 Reykjavík
56,5 m2
Fjölbýlishús
211
954 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Skoða eignina Víðimelur 32
Kjallaraíbúð
Skoða eignina Víðimelur 32
Víðimelur 32
107 Reykjavík
55,8 m2
Fjölbýlishús
312
894 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Strandasel 11
Skoða eignina Strandasel 11
Strandasel 11
109 Reykjavík
43,3 m2
Fjölbýlishús
11
1014 þ.kr./m2
43.900.000 kr.
Skoða eignina Hjaltabakki 4
Skoða eignina Hjaltabakki 4
Hjaltabakki 4
109 Reykjavík
100 m2
Fjölbýlishús
413
649 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin