Falleg og björt þriggja herbergja endaíbúð með sérinngangi, fallegu útsýni og aukaíbúð í hjarta Reykjavíkur.
* Útleigueining með sérinngangi
* Íbúðirnar eru í útleigu og seljast með húsgögnum og tækjum
* Skipt var um bárujárn á húsinu árið 2010
* Skolplagnir voru fóðraðar árið 2015
* Gluggar og tréverk var málað sumar 2023
* Fallegir gluggar og viðarfjalir setja hlýlegan svip á eignina
* Fordæmi eru fyrir því að taka loftpanil niður og einangra þakið og hækka þar með lofthæð í íbúðinni.Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð samkv. Fasteignaskrá Íslands er 69,20 m2, þar af er studio-íbúð í kjallara skráð 19,1 m2. Fyrirhugað fasteignamat 2025 er 50.050.000 kr.
Íbúð á 2. hæð skiptist í anddyri, stiga, geymslu, eldhús, stofu, 2 svefnherbergi og baðherbergi. Gengið er inn um sérinngang á 1. hæð og
viðarstigi leiðir á 2. hæð. Köld
geymsla er undir stiga.
Eldhús er með innréttingu með eldavél, skápum og vask og góðum og björtum borðkrók. Þvottavél er inn í eldhúsinnréttingu. Viðarfjalir á gólfi og fallegt útsýni.
Stofa er með viðarfjölum á gólfi og gluggum sem snúa að Þingholtsstrætinu.
Svefnherbergi 1 er með viðarfjölum á gólfi og rennihurð á milli herbergis og stofu.
Baðherbergi er með sturtuklefa, handlaug og wc.
Svefnherbergi 2 er með viðarfjölum á gólfi.
Studioíbúð með sérinngangi frá garði, var útbúin frá grunni 2017.Rýmið er skráð hjá fasteignaskrá sem "íbúð í kjallara". Grófir steinveggir setja sinn svip á rýmið.
Gengið er inn í flísalagt
alrými sem skiptist í
borðstofu með fataskáp, veggur í miðju afmarkar
svefnrými og þar til móts við er
eldhúsinnrétting með skápum, skúffum, bakarofni og vask.
Baðherbergi er með flísum á gólfii, “walk-in” sturtu, handlaug, tengi fyrir þvottavél og salerni.
Sameiginlegur
bakgarður til vesturs.
Báðar íbúðir eru fullbúnar til að leigja þær í skammtímaleigu eða langtímaleigu.
Húsið er bárujárnsklætt timburhús á steyptum grunni.
Frábær staðsetning í hjarta miðbæjarins, rétt við Laugaveg.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.