Fasteignasalan TORG og Gunnar Patrik löggiltur fasteignasali: kynna glæsilega og bjarta þriggja herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérafnotareit og stæði i bílageymslu í nýlegu húsi við Hringhamar 37 í Hafnarfirði, Birt stærð skv. HMS er 94,7 fm og þar af geymsla 10,3 fm. Tvö rúmgóð svefnherbergi, eldhús og stofa í opnu rými með útgengi út á stóra, afgirta timburverönd í suður og vestur. Vandaðar, sérsmíðaðar innréttingar frá Bræðrunum Ormsson. Myndavéladyrasími. Húsið er viðhaldslétt, steinsteypt, einangrað að utan og klætt með álklæðningu. Allir gluggar eru timbur-álgluggar frá Byko. Glæsileg íbúð í nýju hverfi í Hafnarfirðinum þaðan sem skólar og leikskólar eru í göngufæri og stutt er í alla helstu þjónustu. Fallegar gönguleiðir allt í kring.Allar upplýsingar veitir Gunnar löggiltur fasteignasali í síma 822-9415 eða gunnar@fstorg.isForstofa: Parket á gólfi, rúmgóður fataskápur.
Eldhús: Parket á gólfi, vönduð innrétting frá Arens. Eyja með helluborði og gufugleypi, ljúflokubúnaður á skúffum og skápum, innbyggð uppþvottavél, innbyggður ísskápur ásamt bakaraofni í vinnuhæð.
Stofa: Eldhús og stofa eru í opnu rými, parket á gólfi. Útgengi úr stofu á stóran sérafnotareit í suður og vestur.
Hjónaherbergi: parket á gólfi með rúmgóðum fataskáp.
Barnaherbergi: parket á gólfi með góðum fataskáp.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja, upphengt salerni, vönduð innrétting með ljúflokubúnaði. Tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi.
Sérgeymsla: í sameign ásamt
sameiginlegri
hjóla- og vagnageymslu.Bílageymsla: Stæði merkt B-05
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald kr. 2.700.- kr. af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Allar upplýsingar veitir Gunnar löggiltur fasteignasali í síma 822-9415 eða gunnar@fstorg.is