DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 16. júlí 2026

Lækjargata 3 Akureyri

EinbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
274 m2
9 Herb.
8 Svefnh.
Verð
200.000.000 kr.
Fermetraverð
729.927 kr./m2
Fasteignamat
117.850.000 kr.
Brunabótamat
124.900.000 kr.
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Fasteignanúmer
2148946
Landnúmer
148842
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Fasteignamiðstöðin Hlíðasmára 17 201 Kópavogur  sími 550 3000 / 892 6000 kynnir fasteignina Lækjargata 3 Akureyri , 600 Akureyri, fasteignanúmer F214-8946 og landeignanúmer L148842  stærð 274,0 m2.

Um er að ræða fallegt endurbyggt einbýlishús á tveimur hæðum með auka þriggja herbergja íbúð í kjallaranum og tveggja herbergja íbúð í gestahúsi. Góð bílastæði og mjög snyrtileg lóð með heitum potti og útisturtu á baklóð, timburverönd og hellulagðar stéttar sem og bílastæði við húsin. Eign sem vert er að skoða. Margir útleigu möguleikar. 

Eignin skiptist sem hér segir:
Hæð og ris: Forstofa að austan, eldhús, stofa, forstofa að vestan , baðherbergi og svefnherbergi á hæðinni. Á rishæðinni eru fjögur svefnherbergi, baðherbergi og stofa. Samtals eru fimm mjög góð svefnherbergi í þessum hluta fasteignar. 
Forstofa að austan með flísum á gólfi, úr forstofu er farið niður í kjallara í tæknirými/geymsla og þaðan er innangengt í kjallara íbúðina en einnig er sér inngangur í íbúðina. 
Eldhús með flísum á gólfi, útgengi frá eldhúsi út á verönd til suðurs. Eldhúsinnrétting með bakaraofn í vinnuhæð og er þar innbyggð uppþvottavél. 
Forstofa að vestan með flísum á gólfi og fataskáp. Frá forstofunni er farið inn í svefnherbergi, baðherbergi og inn í eldhúsið. Hægt er að læsa millihurðinni frá forstofu og eldúsi og hefur sá hluti verið nýttur sér. Sér inngangur með forstofu, svefnherbergi og baðherbergi. 
Baðherbergi með flísum á gólfi og hluta veggja, sturta með flísum á gólfi og veggjum með rennihurðum, upphengt wc og innrétting við vask ásamt speglaskáp. Í innréttingunni er innbyggður lítill ísskápur og örbygluofn í efri skáp. Opnanlegur gluggi á baði. 
Svefnherbergi með parket á gólfi og fataskáp. 
Farið er á efri hæðina frá eldhúskróknum. 
Svefnherbergin eru fjögur á rishæðinni og eru þau öll mjög rúmgóð og eru fataskápar í þremur þeirra.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, sturta með flísum á gólfi og veggjum með rennihurðum, baðkar, upphengt wc, handklæðaofn og innrétting við vask. Opnanlegur þakgluggi er á baði. 
Stofan er rúmgóð og björt með útgengi út á svalir til suðurs.  

Kjallara íbúð: Forstofa, tvö svefnherbergi, þvottahús, baðherbergi, stofa og eldhús í opnu rými. Sér inngangur er í íbúðina að austan
Forstofa með flísum á gólfi. Þaðan einnig innangegnt í tæknirými/þvottahús og þaðan milli íbúða.  
Svefnherbergin eru tvö, bæði mjög rúmgóð með parket á gólfum og fataskápum. 
Stofa og eldhús í opnu rými með parket á gólfi, eldhúsinnrétting með stæði fyrir 45 cm uppþvottavél. 
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, walk in sturta með flísum á gólfi og veggjum og glerskilrúmi. Upphengt wc, innrétting við vask og lítill opnanlegur gluggi. 
Þvottahús með vinnuborði og tengi fyrir þvottavél. 

Eins og áður segir þá er innangengt milli íbúða frá forstofu með aðkomu í tæknirými/geymslu. Þar er gott skápapláss. 

Gestahús: Góð 40 fm. tveggja herbergja íbúð sem skiptist í, anddyri, stofu og eldhús í opnu rými, svefnherbergi og baðherbergi. 
Anddyri, stofa og eldhús í opnu rými, flísar við anddyri og parket á alrými. Eldhúsinnrétting með efri skápum í alrými. 
Svefnherbergi með parket á gólfi og fataskáp. 
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, sturta flísalögð, upphengt wc og innrétting við vask. 

Annað: 
- Heitur pottur og úti sturta
- Margir útleigu möguleikar 
- Gólfhiti er í öllum rýmum fyrir utan rishæð. 
- Snjóbræðsla að mestum hluta þar sem hellulagt er. 
- Góð bílastæði 
- Eignarlóð 1344 fm. 
- Vekjum athygli á að svæðið sem heiti potturinn stendur á er aðeins utan lóðarmarka. 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Tilvísunarnúmer: 14-0943

Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar, Hlíðarsmára 17 201 Kópavogi - sími: 550 3000
tölvupóstfang:  fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is  / leiga@fasteignamidstodin.is
Sjá einnig: fasteignamidstodin.is / jardir.is / fasteignir.is / mbl.is/fasteignir
Eftir lokun skiptiborðs:
Magnús Leópoldsson lögg. fasteignasali sími: 550 3000 og 892 6000 - tölvupóstfang magnus@fasteignamidstodin.is
Guðrún Olsen síma 550 3000 - tölvupóstfang gudrun@fasteignamidstodin.is            
María Magnúsdóttir lögfræðingur gsm: 899 5600 - tölvupóstfang maria@fasteignamidstodin.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,0 - 1,8% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár,
til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta
fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/08/201751.750.000 kr.75.500.000 kr.274 m2275.547 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2009
40 m2
Fasteignanúmer
2148946
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
19.650.000 kr.
Fasteignamiðstöðin
http://www.fasteignamidstodin.is

Myndir (100)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hlíðargata 10
Skoða eignina Hlíðargata 10
Hlíðargata 10
600 Akureyri
82.3 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
513
728 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Tungusíða 13
Skoða eignina Tungusíða 13
Tungusíða 13
603 Akureyri
235.3 m2
Einbýlishús
726
616 þ.kr./m2
145.000.000 kr.
Skoða eignina Sólbrekka 16
Bílskúr
Skoða eignina Sólbrekka 16
Sólbrekka 16
700 Egilsstaðir
249.8 m2
Einbýlishús
524
420 þ.kr./m2
105.000.000 kr.
Skoða eignina Fjallakór 6
Bílskúr
Heitur pottur
e
Skoða eignina Fjallakór 6
Fjallakór 6
203 Kópavogur
293.7 m2
Einbýlishús
825
851 þ.kr./m2
249.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin