SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*RÚMGÓÐ RAÐHÚS Á GÓÐUM STAÐ* – *FRÁBÆRT VERÐ*
Falleg, rúmgóð og vel hönnuð raðhús með lokuðum garði verönd út frá stofu og sameiginlegum sundlaugargarði á góðum stað á hinum vinsæla Vistabella golfvelli, um 50 mín akstur suður af Alicante. Þrjú svefnherbergi, þrjú baðherbergi, góð stofa, borðstofa og rúmgott eldhús. Svalir út frá svefnherbergi á efri hæð og auk þess rúmgóðar þaksvalir með frábæru útsýni.
Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali.GSM 893 2495. adalheidur@spanareignir.is og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. karl@spanareignir.is
Nánari lýsing:Aðalhæð: Komið er inn í opið rými þar sem er stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými . Svefnherbergi og baðherbergi. Útgengi út á verönd og einkagarð.
Efri hæð: Tvö svefnherbergi, bæði með sér baðherbergi. Útgengi út á svalir frá öðru herberginu.
Rúmgóð þakverönd.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Rafmagnstæki í eldhúsi fylgja og auk þess þvottavél.
Rafdrifnar gardínur.
Gólfhiti á baðherbergjum.
Bílastæði.
Sér garður sem er hellulagður og með gervigrasi að mestu. Þar er gott pláss t.d. til að borða úti og njóta sólarinnar, sem skín 300 daga á ári.
Auk þess er fallegur sameiginlegur sundlaugargarður með góðri aðstöðu.
Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Vistabella golfvallarins, t.d. La Finca, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas.
Ca. 15 mín akstur er niður á strönd og ca. 15 mín. akstur í La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina vinsælu.
Gott úrval veitingastaða á svæðinu. Auk þess matvöruverslun ofl.
Verð frá 299.000 evrum + kostn. (ISK 43.300.000 + kostn. gengi 1Evra=145 ISK.)
Rólegt og gott umhverfi og frábær kostur fyrir td. barnafjölskyldur.
Tilbúið 8-14 mánuðum eftir undirritun kaupsamnings.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra ef af kaupum verður.
Mögulegt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum gegn aukagjaldi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: bílastæði, þakverönd, air con, sameiginlegur sundlaugargarður, sér garður, útsýni, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Vistabella,