Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu fallega, bjarta og einstaklega rúmgóða 5 herbergja hæð ásamt bílskúr, þrennum geymslum og suðvestursvölum í góðu litlu fjölbýli á rólegum stað við Leifsgötu í Reykjavík. Nýlega er búið að endurnýja eldhúsið ásamt því að slípa allt parket íbúðar. Gler og gluggar íbúðar til austur hafa verið endurnýjaðir og verið er að klára endurnýjun á 2 hæð sem við á, auk þess var stigahús málað nýlega og teppalagt.
Íbúðin er samkvæmt HMS 160,0 fermetrar af stærð og þar af er bílskúr 19,3 fermetrar og geymslur 6,2 -10,3 og 18,3 fermetrar í rishæð og hægt að nýta sem herbergi að hluta þar sem er sameiginlegt snyrting er á hæðinni.
Lýsing eignar:
Innngangur, sameiginlegur með teppi á stigahúsi.
Forstofa, parketlögð með fatahengi.
Stofa, parketlögð, björt og rúmgóð með gluggum í tvær áttir.
Borðstofa, parketlögð, rúmgóð með tvöfaldri rennihurð inn í stofu og aðgegni frá gangi.
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, innrétting, upphengt wc og baðkar með sturtu.
Gangur, parketlagður.
Eldhús, flísalagt gólf og rúmgott með góðri borðaðstöðu. Fallegar nýlegar hvítar Ikea innréttingar með viðarborðplötu, innbyggðri uppþvottavél, innbyggðum ískáp, rafmagnshelluborði, ofn í vinnuhæð og með útgengið á svalir til suðvesturs.
Herbergi I, parketlagt.
Herbergi lI, parketlagt og rúmgott.
Herbergi Ill, parketlagt með glugga í tvær áttir.
Í rishæð hússins er:
Sameiginlegt þvottaherbergi, máluð gólf og hver með sína vél.
Sameiginlegt wc, korklagt með wc og handlaug.
Gangur, korklagður.
Geymsla l, steypt gólf.
Geymsla ll, parketlögð með þakglugga og gæti verið herbergi.
Geymsla lll, dúklögð með þakglugga.
Á jarðhæð er sameiginleg rúmgóð hjólageymsla.
Bílskúr, er 19,3 fermetrar með steyptu gólfi, með rennandi vatni, gönguhurð og sérbílastæði fyrir 2 bíla fyrir framan með rafhleðslu.
Húsið að utan lítur vel út og skipt hefur verið um alla glugga, gler sem við á á austurhlið.
Lóðin er fullfrágengin og með steyptum veggjum í kring, steyptum stéttum, tyrfðri flöt og trjágróðri.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á rólegum og eftirsóttum stað í miðborginni þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, verslanir, þjónustu, Sundhöll Reykjavíkur og mannlíf miðborgarinnar.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Er því væntanlegum kaupendum bent á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.