RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Mjög vönduð og vel skipulögð 82,0 fm. tveggja herbergja íbúð á 2.hæð (1.hæð frá garði) með sérafnotafleti út í garð í nýlegu lyftuhúsi á vinsælum stað í miðbænum, á horni Hverfisgötu og Barónsstígs. Sérmerkt bílastæði í bílgeymslu fylgir eign í lokuðum bílakjallara og góð geymsla. Gólfhitakerfi er í allri íbúðinni, vandaðar innréttingar og gólfefni, aukin lofthæð, myndavéladyrasími og aðgangskerfi inn í húsið. Einnig er aðstaða fyrir líkamsrækt í sameign.
**VELKOMIÐ AÐ BÓKA EINKASKOÐUN ** Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, gudrunlilja@remax.is
Eignin er öll innréttuð á vandaðan og smekklegan hátt og eru innréttingar sérsmíðaðar úr svartbæsaðri eik og ná upp í loft. Innfelld lýsing er í loftum að hluta og kvartsteinn er á borðum innréttinga í eldhúsi og í baðherbergi. Gólfefni á alrýmum og svefnherbergi er vandaðar flísar frá Álfaborg. Innanhúshönnun Berglindar Berndsen og Helgu Sigurbjarnardóttur á bæði á íbúðum og sameign tryggja fallega heildarmynd hússins.KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
Nánari lýsing:Gengið er inn í íbúðina frá sameign og sameiginlegum garði bakatil sem snýr í suður, stór og skjólgóður.
Forstofa er rúmgóð með fataskáp og flísar á gólfi.
Eldhús er opið til stofu með sérsmíðuðum innréttingum upp að lofti og eldhúseyju. Vandaðar innbyggður ísskápur og frystir, spanhelluborð og blástursofn frá AEG/Ormsson.
Stofa er í opnu og björtu rými með útgengt út á
6,5 fm svalir og að auki
9,3 fm sérafnotaflötur til vesturs.
Svefnherbergi er rúmgott með stórum sérsmíðuðum fataskáp og flísar á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt og
með vönduðum tækjum, sturtu, sérsmíðuðum innréttingum og þvottaaðstöðu. Einnig er góður opnanlegur gluggi.
Bílastæði er í lokuðum bílakjallara með möguleika á bílahleðslustöð.
Sérgeymsla staðsett í bílgeymslu stærð 5,8 fm.
Einnig er
hjóla- og vagnageymsla ásamt
aðstöðu fyrir líkamsrækt á jarðhæð.
Skjólgóður sameiginlegur
suður garður bakatil.
Sameign hússins er öll mjög snyrtileg, anddyrið er flísalagt og stigagangur teppalagður. Mynddyrasímakerfi er við inngang í húsið og rafmagnsopnun er á hurðum í sameign. Sorpgeymsla er á jarðhæð hússins en geymslur íbúðanna eru í bílakjallara. Í kjallara er einnig sameiginleg æfingaraðstaða og hjólageymsla. Byggingarnar að Hverfisgötu eru byggðar U-laga og mynda þannig skjólgóðan garð á milli húsanna sem snýr í suður. Húsið var byggt árið 2018 og var mikið lagt í hönnunn hússins, bæði að utan sem innan. Aðalhönnuður hússins er Tryggvi Tryggvason. Að innanhússhönnun komu Berglind Berndsen og Helga Sigurbjarnardóttir.
Nánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, gudrunlilja@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.