Fasteignaleitin
Skráð 23. jan. 2025
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Los Balcones

Nýbygging • HæðÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
131 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
37.600.000 kr.
Fermetraverð
287.023 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Þvottahús
Garður
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
944060624
Húsgerð
Hæð
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Verönd, sér garður eða þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTTAR EFRI EÐA NEÐRI SÉR HÆÐIR* - * Stæði í bílakjallara*
Stórglæsilegar, bjartar og rúmgóðar 3ja herb. íbúðir í tveggja hæða húsum í lokuðum garði með sameiginlegri sundlaug á Los Balcones svæðinu, um 40-50 mín akstur suður af Alicante. Tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, eldhús opið við borðstofu. Hægt er að velja um íbúðir á neðri hæð með lokuðum sérgarði eða penthouseíbúðir á efri hæð með góðum svölum út frá stofu og auk þess stórum þaksvölum yfir íbúðinni.  Stæði í bílakjallara.
Hér er um að ræða frábært lokað resort með góðri útiaðstöðu. Þrjár sundlaugar, heitur pottur, mini golf völlur, tennis völlur, leikaðstaða fyrir börnin, líkamsrækt og spa.
Frábærar eignir til útleigu og því góð fjárfesting. Öll þjónusta fyrir útleigu á staðnum, eftirlit, þrif, afhending lykla og markaðssetning á yfir 50 bókunarsíðum. 
Tilvalið til að sameina lífsgæði í sólinni og fjárfestingu með góðri ávöxtun.


Upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali.GSM 893 2495. adalheidur@spanareignir.is og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. karl@spanareignir.is


Skipulag:
Komið er inn í opið rými þar sem er rúmgóð stofa,borðstofa og opið eldhús við borðstofu. Eldhúsið er fallega innréttað og tengist borðstofunni á skemmtilegan máta.  Tvö svefnherbergi. Sér baðherbergi með einu svefnherberginu og auk þess annað baðherbergi.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Vistabella, La Finca og Las Colinas.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina og ca. 10 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Verslanir og veitingastaðir í göngufæri.
Hér er um að ræða góðar eignir á góðu verði fyrir fólk sem kann að njóta lífsins.

Verð miðað við gengi 1 Evra = 145 ISK.

Hægt er að velja 75 fm. íbúð á neðri hæð með tveimur veröndum, annari framan við húsið og hinni út frá stofu, 31 fm. + 25, samtals sérafnotaflögur 131 fm. 
Verð á íbúðum á neðri hæð er frá 259.900 Evrum (ISK37.600.000)

Einnig er hægt að velja 75 fm. íbúð á efri hæð með 18 fm. svölum út frá stofu og 86 fm. sér þakverönd, samtals sérafnotaflötur 179 fm.
Verð á íbúðum á efri hæð er frá 309.900 Evrum (ISK44.900.000).

Ofan á verðin leggst 10% skattur og ca. 3% stimpilgjöld og annar kostnaður við kaupin, þe. ca. 13% samtals.

Rafstýrðir gluggahlerar.
Lagt fyrir air - con
Í boði eru hagstæðir pakkar með húsgögnum og rafmagnstækum í eldhús.
Vandaður byggingaraðili.
Íbúðirnar eru í byggingu og verða afhentar tilbúnar í júní-desember 2025.
Fyrri áfangar eru uppseldir, aðeins örfáar íbúðir eftir í 6. og 8. áfanga.

Verslanir og veitingastaðir í göngufæri. Glæsilegt útsýni frá flestum íbúðum á efri hæðum.

Þessar íbúðir eru að seljast hratt. Fyrstu áfangar eru nánast uppseldir, en nýjir áfangar voru að koma í sölu, og því hægt að velja góðar íbúðir.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Vertu velkomin í skoðunarferð til Spánar með flugi og gistingu, sérsniðna að þínum þörfum.  Við endurgreiðum þér flug og gistingu fyrir allt að 2 við kaup á nýrri eign ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, sameiginlegur sundlaugargarður, sér garður, þakverönd,útsýni, air con, stæði í bílakjallara,
Svæði: Costa Blanca, Los Balcones,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
944060624

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Torrevieja
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Torrevieja
Spánn - Costa Blanca
110 m2
Fjölbýlishús
322
358 þ.kr./m2
39.400.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Dolores
SPÁNAREIGNIR - Dolores
Spánn - Costa Blanca
137 m2
Hæð
423
264 þ.kr./m2
36.200.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Pilar de la Horadada
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Pilar de la Horadada
Spánn - Costa Blanca
123 m2
Fjölbýlishús
322
294 þ.kr./m2
36.200.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
Spánn - Costa Blanca
95 m2
Hæð
322
380 þ.kr./m2
36.100.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin