DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 28. nóv. 2025

Árgilshraun 2

SumarhúsSuðurland/Hella-851
184 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
7.690.000 kr.
Brunabótamat
13.200.000 kr.
Mynd af Elínborg María Ólafsdóttir
Elínborg María Ólafsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2342249
Landnúmer
198047
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Inngangur
Sérinngangur
Valborg fasteignasala kynnir Árgilshraun 2 í einkasölu.
Óskað er eftir tilboðum í eignina.
Um er að ræða fullgerðan bílskúr og veglegt heilsárshús í byggingu. Lóðin er gróin og stendur í skipulagðri frístundabyggð í landi Svínhaga Heklubyggð. Lóðin er 11200,0 m² m², eignarlóð. Landið er mjög gróið en búið er að planta miklum fjölda trjáa og eru fallegir, skjólgóðir lundir á svæðinu. Einnig er óheft útsýni að ánni og fjallasýn mikil.
Á landinu stendur fullbyggður bílskúr sem í dag er innréttaður sem studioíbúð. Þar er salerni og eldhús og flísar á gólfi. Rafknúin bílskúrshurð og gönguhurð á hlið bílskúrsins. Bílskúrinn er 28,4m² að stærð. Í byggingu er sumarhús en komin er steypt plata og búið er að kubba upp tæplega helminginn af veggjunum. Allt efni til að klára uppkubbun fylgir með. Stærð sumarhússins er 147m².


Teikning húsinns gerir ráð fyrir þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, þvottahúsi, eldhúsi og mjög rúmgóðri stofu, borðstofu og koníaksstofu. Þá er gert ráð fyrir kamínu í húsinu. Gert er ráð fyrir gólfsíðum gluggum og skjólgóðum palli fyrir framan húsið. Nostrað hefur verið við umhverfi hússins. Vegleg hleðsla er í innreiðinni og við bílastæði og einnig hefur verið sett upp falleg lýsing við bílastæðin. Þá hefur verið plantað mörg hundruð trjáplöntum ýmiskonar og ræktaðir upp túnbalar inn á milli trjánna. Á þessum reit má finna tilkomumikið útsýni til fjalla og að hálendi, útsýni að ánni og öllu hennar sjarmerandi umhverfi, skjólgóða lundi á milli trjánna og fallegar gönguleiðir allt um kring. 

Ekið er að Árgilshrauni frá þjóðvegi 1 fram hjá Hellu og beygt inn á Rangárvallaveg nr. 264 og svo aftur inn á  Þingskálavegi nr. 268 og ekið sem leið liggur að skilti merkt Svínhagi. Þar er kort sem vísar leiðina að Árgilshrauni 2.
Landið er þáttakandi í verkefninu Hekluskógar, og fær árlega úthlutað birkiplöntum til gróðursetningar.
Sumarhúsafélag er á svæðinu sem sér um sameiginlega hagsmuni.
Sjá staðsetningu lóðar hér:
Hekubyggð

Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is. 


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2021
2.8 m2
Fasteignanúmer
2342249
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
13.200.000 kr.

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ketilsstaðir 0
Skoða eignina Ketilsstaðir 0
Ketilsstaðir 0
851 Hella
148.3 m2
Sumarhús
423
633 þ.kr./m2
93.900.000 kr.
Skoða eignina Klausturhólar C-Gata 23
Klausturhólar C-Gata 23
805 Selfoss
60.4 m2
Sumarhús
433
793 þ.kr./m2
47.900.000 kr.
Skoða eignina Klapparhraun 13
Skoða eignina Klapparhraun 13
Klapparhraun 13
851 Hella
Jörð/Lóð
4.400.000 kr.
Skoða eignina Öldubyggð 24
Öldubyggð 24.jpg
Skoða eignina Öldubyggð 24
Öldubyggð 24
805 Selfoss
52.4 m2
Sumarhús
312
628 þ.kr./m2
32.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin