Fasteignasalan TORG kynnir síðasta raðhúsið við Furugerði Nýtt, vandað og glæsilegt 5 herbergja raðhús með tveimur baðherbergjum og þvottahúsi við Furugerði í Reykjavík.
Skráð stærð er 135,5 m², þar af er stærð íbúðar 125,7 m² og geymsla í bílakjallara er 9,8 m². Bílastæði í bílakjallara fylgir. Húsið er tilbúið til afhendingar við undirritun kaupsamnings.Allar nánari upplýsingar veitir Guðný Ösp, löggiltur fasteignasali gsm 665-8909 eða gudny@fstorg.is eða Elka Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali gsm 863-8813 eða elka@fstorg.isNánari lýsing; Gengið er inn um aðalinngang í
anddyri þar sem er
baðherbergi með sturtu og
þvottahús með góðri innréttingu.Úr anddyri er komið inn í
alrými þar sem stigi bindur saman hæðir.
Eldhús,
stofa og
borðstofa eru í sameiginlegu opnu rými. Stórir gólfsíðir gluggar veita birtu inn í stofu og borðstofu. Úr stofu er gengið út á sérafnotareit til suðurs.
Á annarri hæð eru
fjögur svefnherbergi ásamt
baðherbergi með baðkari. Útgengi er útá rúmgóðar svalir til suðurs úr hjónaherbergi.
Íbúðum er skilað fullbúnum með innréttingum en án gólfefna að undanskildu anddyri og votrýmum (baðherbergi og þvottahús) sem eru flísalögð.
Allar innréttingar eru í ljósum furulit frá
Voke3. Í eldhúsi eru borðplötur úr kvartzsteini í ljósum lit frá Technistone. Í eldhúsi eru vönduð innbyggð eldhústæki og spanhelluborð. Gólfhiti er á neðri hæð en á efri hæð er hefðbundið ofnakerfi. Útveggir og hluti innveggja innan íbúða eru úr krosslímdum timbureiningum og verður yfirborð þeirra annarsvegar sýnilegt CLT og hins vegar gifsklætt, spartlað og málað.
Íbúðir eru loftæstar með
sjálfstæðu loftskiptakerfi frá norska framleiðandanum Flexit. Kerfið blæs inn fersku lofti í íverurými og dregur út loft frá baðherbergjum, þvottahúsi og eldhúsi. Varmi úr útsoginu er fluttur yfir í ferska loftið með varmaendurvinnslu án þess að blanda loftinu saman. Gluggar eru ál-timbur gluggar frá danska framleiðandanum Ideal-Combi, Gler er tvöfalt k-einangrunargler og sérstaklega
hljóðeinangraðir þar sem við á.
Efnisval er með umhverfisáhrif í huga og uppbygging á húsunum miðast við að notuð séu efni sem þurfa lítið viðhald. Krosslímdar timbureiningar í burðarvirki húsanna eru einangraðar að utan og klædd veðurþolinni, viðhalds lítilli klæðningu.
Lóðin Furugerði 23-49 skiptist í tvo reiti, Á reit A eru tvö fjölbýlishús á tveimur hæðum með samtals 20 íbúðum og á reit B eru 10 raðhús á tveimur hæðum. Undir húsunum er staðsteyptur kjallari með geymslum og bílastæðum.
Sér bílastæði í bílakjallaranum fylgir öllum raðhúsunum auk sameiginlegri hjóla/vagnageymslu. Gott aðgengi er fyrir gangandi og hjólandi umferð að lóðinni frá austur- og vesturenda.
Nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins www.furugerdi.isAllar nánari upplýsingar veitir Guðný Ösp, löggiltur fasteignasali gsm 665-8909 eða gudny@fstorg.is eða Elka Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali gsm 863-8813 eða elka@fstorg.is