Fasteignaleitin
Skráð 30. mars 2025
Deila eign
Deila

Hólabraut 17

FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
144.9 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
551.415 kr./m2
Fasteignamat
48.350.000 kr.
Brunabótamat
56.150.000 kr.
SS
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1933
Þvottahús
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2147649
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
endurnýjaðar að stórum hluta
Raflagnir
Endurn. að hluta
Frárennslislagnir
endurn. undirhúsinu 2021
Gluggar / Gler
Endurnýjað 2021
Þak
Járn endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Hljóðbært er á milli íbúðar í kjallara og miðhæðar.
Allar hurðar upprunalegar á aðalhæð.
Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Hólabraut 17 í miðbæ Akureyrar

Falleg 3ja herbergja íbúð á 1. hæð (miðhæð) með 3ja herbergja aukaíbúð í kjallara í miðbæ Akureyrar - samtals 144,9 m²
Húsið sjálft er reisulegt og hefur verið töluvert endurnýjað síðustu ár t.d. voru allir gluggar endurnýjaðir á árunum 2015 - 2021, járn hefur verið endurnýjað á þaki, ný botnplata steypt í húsið, skólp og dren endurnýjað sem og jarðvegsskipt í kringum húsið. 

Nánari lýsing.
Íbúð á hæð
 skiptist í gang, stofu og eldhús í einu opnu rými, tvö svefnherbergi og baðherbergi.
Eldhús og stofa eru með ljósu harðparketi á gólfi og í eldhúsi er snyrtileg, nýleg ljós innrétting.
Svefnherbergin eru með ljósu harðparketi á gólfi og í þeim báðum eru fataskápar.
Baðherbergið var nýlega endurnýjað og þar eru flísar á gólfi og fibo trespo plötur á veggjum, nýlegur skápur undir vaska og sturta með gleri.  Opnanlegur gluggi er á baðherberginu og tengi fyrir þvottavél.

Íbúð í kjallara
Á árinum 2021 - 2022 var farið í miklar framkvæmdir í kjallara.  Eldri botnplata var brotin upp og kjallarinn dýpkaður, ný plata steypt með gólfhita, frárennslilagnir endurnýjaðar sem og allar vatns- og raflagnir, einangrun innveggir osfrv.  
Íbúðin skiptist í eldhús og stofu í einu rými, baðherbergi og tvö svefnherbergi.  
Eldhús og stofa eru einu opnu rými og í eldhúsi er ný sérsmíðuð svört innrétting frá JKE með gegnheilli límtrés borðplötu. 
Baðherbergi með walk-in sturtu með gleri, nýrri svartri innréttingu og hurð út á pall til vesturs (að heitum potti).
Svefnherbergin eru tvö, eitt rúmgott en hitt lítið og er ætluð sem geymsla.
Sérinngangur er í íbúðina frá verönd á vesturhlið en einnig er aðkoma að íbúðinni í gegnum sameiginlegan stigagang á norður hlið.
Í kjallara er einnig þvottahús, geymsla og tæknirými við stigagang. 
Sameiginlegur inngangur og stigagangur er í húsinu norðanverðu.

Annað
- Nýlegur 15 m² geymsluskúr er á lóð sem er í sameign.
- Sér bílastæði með möl í er sunnan við húsið.
- Rafmagn hefur veri leitt út fyrir bílhleðslustöð.
- Steyptur pallur með steyptum veggjum er vestan við húsið með snjóbræðslu í. 
- Heitur pottur er á pallinum, rafmagnspottur sem breytt hefur verið í hitaveitupott.

Endurbætur á síðustu árum eru m.a.
Ytra byrði
- Þak hefur verið endurnýjað að hluta - járn endurnýjað.  Ártal endurbóta óþekkt.
- Skipt var um alla glugga í kjallara hússins og á miðhæð árið auk hluta glugga í risi árið 2021.  
- Grafið var undir húsið og skipt um jarðveg og steypt ný plata árið 2021.  Í leiðinni var lofthæð aukin í kjallara.  Settar voru nýjar skólplagnir út að vegg, sett nýtt dren og dæla sem tekur við vatni úr brekkunni.
-  Skipt var um jarðveg undir stæði fyrir tvo bíla sunnan við húsið.
- Steypt var verönd vestan við húsið með snjóbræðslu árið 2021.  Útiljósum komið fyrir í steyptum veggjum við verönd og tengi fyrir bílhleðslu sett á suðurhlið hússins. 
- Heitavatnspottur með mótorloka komið fyrir á verönd árið 2022 - rafmagnspott breytt í hitaveitu.

Miðhæð
- Skipt um alla glugga árið 2021.
- Nýlegt harðparket á gólfi í stofu, eldhúsi og öðru svefnherbergi.
- Baðherbergi uppgert árið 2023 þar sem skipt var um lagnir og sturtu, veggir klæddir og flísar lagðar á gólf.
- Nýjar sérsniðnar Plis-Sol gardínu frá Álnabæ í gluggum í svefnherbergjum og í stofu.
- Eldhúsinnrétting endurnýjuð 2015.
- Sérsniðnar gardínur í gluggum frá Álnabæ síðan 2022.

Kjallari - endurbyggður 2021 - 2022
- Steypt ný gólfplata, lagðar hitalagnir í gólf og gólfið lagt með Stucco steinefnaspartli.
- Veggir hreinsaðir, einangraðir og klæddir.  
- Veggir eru að hluta til með Crustal kalkspartli með grófri áferð frá sérefni.
- Öll gólf og veggir á baði eru með StucDeco fljótandi náttúrustein með fíngerðri áferð.   
- Allar raflagnir lagaðar að nýju og nýrri töflu komið fyrir.  Vatnslagnir allar nýjar.
- Öll ljós eru ný og innfeld.
- Sérsmíðuð eldhúsinnrétting frá JKE og gegnheil límtrés borðplata úr eik - ný tæki.
- Allar innihurðar nýjar sem og innveggir.
-  Stýringar fyrir pott í tækjarými í kjallara.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.



 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/07/201714.900.000 kr.20.900.000 kr.101.8 m2205.304 kr.
13/10/200812.940.000 kr.13.000.000 kr.101.8 m2127.701 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Austurbrú 14 - 108
Bílastæði
Austurbrú 14 - 108
600 Akureyri
169.4 m2
Fjölbýlishús
312
484 þ.kr./m2
82.000.000 kr.
Skoða eignina Norðurbyggð 16
Bílskúr
Skoða eignina Norðurbyggð 16
Norðurbyggð 16
600 Akureyri
150 m2
Einbýlishús
413
533 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Hjallalundur 16
Skoða eignina Hjallalundur 16
Hjallalundur 16
600 Akureyri
149.9 m2
Raðhús
413
557 þ.kr./m2
83.500.000 kr.
Skoða eignina Bjarmastígur 9
Skoða eignina Bjarmastígur 9
Bjarmastígur 9
600 Akureyri
169.3 m2
Fjölbýlishús
413
472 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin