GÓÐ TVEGGJA HERBERGJA ÍBÚÐ Á MIÐHÆÐ MEÐ AUKAÍBÚÐ Í KJALLARA Í FALLEGU NORSKU TIMBURHÚSI Í BAKHÚSI VIÐ LAUGAVEG 49A Í 101 REYKJAVÍK. EIGN Á BESTA STAÐ Í BÆNUM- FRÁBÆRIR TEKJUMÖGULEIKAR Í ÚTLEIGU T.D. TIL FERÐAMANNA! HEILDARSTÆRÐ EIGNAR 85 fm.
Frekari upplýsingar veita Vernharð Þorleifsson löggiltur fasteignasali í síma 699-7372 / venni@remax.is og Magga Gísladóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-7494 / magga@remax.isKíktu í heimsókn til okkar á Facebook eða
á InstagramMiðhæð: Afskaplega heillandi tveggja herbergja 49,4 fm íbúð þar af geymsla 2,7 fm. Komið inn í sameiginlega forstofu með efri hæð. Gott eldhús, stofa og borðstofa í alrými, viðarklædd loft. Svefnherbergi er inn af stofu, góðir skápar. Gólfefni á stofu, eldhúsi og herbergi er harðparket. Snyrtilegt lítið baðherbergi, flísalagt gólf og upp hálfann veggin. Inn í íbúð er geymsla og þvottahús. Undir útistiga er sameiginleg útigeymsla með efri hæð.
Kjallari: Tveggja herbergja ósamþykkt 35,6 fm íbúð. Komið inn í sameiginlega forstofu. Eldhús og stofa í alrými, flísalagt gólf. Svefnherbergi með parketi á gólfi. Baðherbergi var gert upp 2022 á skemmtilegan hátt. Ný sturta og klefi, vaskur, innrétting og blöndunartæki. Í kjallara er einnig sameiginleg þvottaaðstaða og lítil geymsla.
Fallegur afgirtur garður með sólpalli. Miklir möguleikar til að gera sælureit við húsið. Skjólsæll garður. Húsið stendur á 213,8 fm eignarlóð og er þríbýlishús og eitt bílastæði á lóð fylgir heildareigninni.
Að sögn seljanda hefur eftirfarandi verið gert: Settir voru nýir gluggar í íbúðina árið 2018 úr furu með sérstaklega hljóðeinangrandi gleri, fyrir utan þrjá glugga í suðurenda stofu og svefnherbergi sem eru með tvöföldu gleri.
Þak var endurrýjað árið 2012. Skipt var um járn og þakpappa. Teknir voru niður reykháfar og skipt um þakglugga yfir uppgangi íbúðar á efri hæð. Þakið er nánaðst viðhaldsfrítt þar sem það er ekki málað heldur húðað.
Rafmagnið var endurnýjað 2008. Það voru settar nýjar innstungur í báðar íbúðir, útsláttaröryggi og nýjar leiðslur – það var lagt nýtt rafmagn á allar hæðirnar. Sameiginlegt rafmagn er fyrir eignarhluta 0101 og 0201 en lítið mál að breyta því. Skolplagnir eru tiltölulega nýlegar og komin PVC rör út í brunn.
Mjög skemmtileg eign í miðbæ Reykjavíkur sem við mælum með.