Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Fornagil 7
Glæsileg, opin og björt fimm herbergja parhúsaíbúð á tveimur hæðum með hjónasvítu, ásamt sambyggðum bílskúr. Gróin og skjólsæl verönd með heitum potti og garðskála norðan við hús og vestan við hús er saunatunna og kalt kar. Eignin er skráð samtals 188,9 fm. að stærð þar af er bílskúr skráður 25,1 fm.
Neðri hæð skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottarými í bílskúrnum.
Stigauppganga björt með útgengi út á verönd til norðurs.
Efri hæð skiptist í bjarta stofu, borðstofu og eldhús í opnu rými, baðherbergi og tvö svefnherbergi, annað þeirra mjög rúmgott með sjónvarpsholi og útgengi út á verönd.
Forstofa rúmgóð með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Svefnherbergin eru alls fjögur, tvö á neðri hæð og tvö á efri hæð. Svefnherbergi neðri hæðar eru bæði með flísum á gólfi og er skápur í öðru þeirra.
Svefnherbergi efri hæðar eru með parket á gólfi, stór skápur og sjónvarpshol er í stærra herberginu sem er sannkölluð hjónasvíta og einnig útgengi út á verönd til vesturs í saunu og kalt kar, heitur pottur er svo einnig á lóðinni.
Baðherbergin eru tvö, baðherbergi neðri hæðar er með flísum á gólfi og veggjum, flísalögð sturta, upphengt salerni og innrétting við vask. Baðherbergi efri hæðar með flísum á gólfi og veggjum, upphengt salerni, tveir vaskar við innréttingu og frístandandi baðkar.
Stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými með flísum á gólfi. Mjög bjart og skemmtilegt rými með stórum gluggum til austurs. Góð innrétting í eldhúsi með eldunareyju með gashelluborði og háf þar fyrir ofan. Hægt er að sitja við eyjuna og eru þar skúffur öðru megin og tenglar. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur í innréttingu fylgja með, bakaraofn í vinnuhæð og tækjaskápur.
Björt stigauppganga með flísum á gólfi, glerhandrið og stór gluggi til norðurs. Á milli palli er útgengi út á verönd til norðurs beint að sólskála.
Bílskúr er flísalagður, innst í bílskúrnum er þvottaaðstaða. Innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og bekkplata með vask ásamt efri skápum. Rafdrifin hurð er á bílskúr.
Verönd / lóð með gróðri sem myndar gott skjól, timburverönd að norðan með garðskála, heitur pottur, búið er að byggja yfir heita pottinn. Tenging yfir á pallinn vestan við hús þar er einnig timburverönd með saunatunnu og köldu kari. Gengið er út á verönd úr hjónaherbergi og stigauppgöngunni. Einnig frá bílastæði, þar eru tröppur upp og hlið.
Framan við húsið eru tvö steypt bílastæði og hellulögð stétt. Inngangur er undir góðu skyggni af stofu.
Annað:
-Ljósleiðari
-Varmaskiptir
-Gólfhiti
-Snjóbræðsla í bílastæði
-Tvö baðherbergi
-Fjögur svefnherbergi möguleiki á fimmta
-Garðskáli, heitur pottur, saunatunna og kalt kar
-Stutt í leik- og grunnskóla
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
olafur@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955