Fasteignaleitin
Skráð 3. sept. 2025
Deila eign
Deila

Gullsmári 9

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
61.6 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
62.900.000 kr.
Fermetraverð
1.021.104 kr./m2
Fasteignamat
53.200.000 kr.
Brunabótamat
36.550.000 kr.
Mynd af Björgvin Þór Rúnarsson
Björgvin Þór Rúnarsson
Fasteignasali
Byggt 1996
Þvottahús
Lyfta
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2223841
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
7
Númer íbúðar
4
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita/gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Prima fasteignasala og Björgvin Þór Rúnarsson lgf. kynna fallega og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á 7.hæð með rúmgóðum yfirbyggðum svölum í lyftuhúsi fyrir 60 ára og eldri við Gullsmára 9, Kópavogi.

Samkvæmt HMS er íbúðin skráð 61.6 fm2 ásamt sér geymslu í kjallara og sameiginlegri hjóla og vagnageymslu. 
Frábær staðsetning þar sem örstutt er í Smáralind, heilsugæslu, sundlaugar o.fl. 
Góð og vel staðsett íbúð á eftirsóttum stað í Smárahverfi Kópavogs í nálægð við fjölbreytta þjónustu.

Nánari Lýsing eignar:
Forstofa: Með fataskáp. 
Eldhús: Í opnu rými með stofu, fínn borðkrókur, innrétting með tengi fyrir uppþvottavél ( ísskápur og uppþvottavél geta fylgt)
Stofa: Björt stofa í opnu rými með eldhúsi með gluggum á tvo vegu, gengið er út á yfirbyggðar svalir úr stofu.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með góðu skápaplássi. 
Baðherbergi: Góð innréttingm, tengi fyrir þvottavél. Veggir flísalagðir, dúkur á gólfi, sturta. 
Parket er í öllum rýmum fyrir utan baðherbergi.
Mynddyrasími er íbúðinni. 

Innangengt er í félagsmiðstöðina Gullsmára á jarðhæð hússins sem rekin er af félagi eldri borgara í Kópavogi. Þar er boðið er upp á ýmsa þjónustu s.s. hárgreiðslustofu, fótaaðgerðarstofu og margskonar félagsstarf ásamt matsal þar sem hægt er kaupa heita máltíð í hádeginu. Félagsstarfið í húsinu er sérstaklega öflugt og fjölbreytt, við allra hæfi. Á efstu hæð er rúmgóður samkomusalur sem mögulegt er að leigja gegn vægu gjaldi. Sameiginlegur snyrtilegur garður, púttvöllur  með 18 holum.   



Nánari upplýsingar veita:
Björgvin Þór Rúnarsson löggiltur fasteignasali / s.8551544 / bjorgvin@primafasteignir.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
02/01/201725.100.000 kr.36.500.000 kr.61.6 m2592.532 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Silfursmári 6
Skoða eignina Silfursmári 6
Silfursmári 6
201 Kópavogur
64.9 m2
Fjölbýlishús
211
1000 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Lækjasmári 4
Skoða eignina Lækjasmári 4
Lækjasmári 4
201 Kópavogur
73.9 m2
Fjölbýlishús
211
873 þ.kr./m2
64.500.000 kr.
Skoða eignina Marbakkabraut 5
Opið hús:09. sept. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Marbakkabraut 5
Marbakkabraut 5
200 Kópavogur
62.9 m2
Fjölbýlishús
413
1032 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarhjalli 61
IMG_2653 Large.jpeg
Hlíðarhjalli 61
200 Kópavogur
77.5 m2
Fjölbýlishús
3
812 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin