Ólafía Ólafsdóttir lgf., og Lögheimili eignamiðlun kynna í einkasölu: Glæsilegt, fjölskylduvænt, 2ja hæða parhús við Malarskarð 10 í nýju hverfi í Skarðshlíð, Hafnarfirði.HÚSIÐ ER ALLS 234,1m2 Á TVEIMUR HÆÐUM OG ÞAR AF ER CA. 26,7m2 BÍLSKÚR Á EFRI HÆÐ OG CA. 50m2. FULKLÁRUÐ SÉR ÍBÚÐ Á NEÐRI HÆÐ MEÐ SÉR INNGANGI. Húsið verður afhent fullklárað að utan, með grófjafnaðri lóð. Að innan er efri hæð ásamt hluta neðri hæðar fokheld. Í hluta neðri hæðar er sér íbúðareining ca. 50m
2 sem er fullkláruð án gólfefna utan baðherbergis sem er flísalagt.
- Á NEÐRI HÆÐ ER SÉR ÍBÚÐAREINING MEÐ SÉR INNGANGI. ÍBÚÐIN ER FULLBÚIN ÁN GÓLFEFNA
- EFRI HÆÐ OG HLUTI NEÐRI HÆÐAR AFHENDIST FOKHELD
- MÖGULEGT ER AÐ FÁ HÚSIÐ AFHENT TILBÚIÐ TIL INNRÉTTINGAR
Vinsamlegast bókið skoðun í síma: 898 8242 eða á ola@logheimili.isAth. þrívíddarmyndir eru aðeins til viðmiðunar.
Skipting eignar samkvæmt teikningu: stærðir rýma miðast við innanmál.
Heildar stærð eignarinnar er 234,1m2 og þar af er sér íbúð á neðri hæð ca. 50m2 og bílskúr 26,7m2.
EFRI HÆÐ: samanstendur af bílskúr, forstofu , herbergi, baðherbergi, og alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Útgengt er úr borðstofu út á suðursvalir. Aðal inngangur hússins er á norður hlið.
Bílskúr: 26,7m2 innbyggður bílskúr.
Forstofa: úr forstofu er aðgengi að bílskúr. Samkvæmt teikningu er gert ráð fyrir fatahirslu í forstofu.
Herbergi: eitt herbergi á hæðinni og þar er gert ráð fyrir fatahirslu.
Baðherbergi: þar sem gert er ráð fyrir sturtu, salerni og innréttingu með handlaug.
Alrými: stofa, borðstofa og opið eldhús eru í opnu björtu rými. Gert er ráð fyrir veglegri eldhúsinnréttingu með eyju.
NEÐRI HÆÐ: Frá efri hæð er innangengt í hluta og/eða alla neðri hæðina.
Sjónvarpshol: rúmgott sjónvarpshol í miðju rými.
Baðherbergi: baðherbergi þar sem gert er ráð fyrir innréttingu, salerni og baðaðstöðu.
Þvottarými: rúmgott þvotta / geymslurými þar sem gert er ráð fyrir innréttingu með vaski, þurrkara og þvottavél.
Svefnherbergi: tvö rúmgóð herbergi þar sem gert er ráð fyrir fatahirslum.
Í HLUTA NEÐRI HÆÐAR ER SÉR ÍBÚÐAREINING MEÐ SÉR INNGANGI. HLUTI SÉR ÍBÚÐAR Á NEÐRI HÆÐ: íbúðin afhendist fullkláruð án gólfefna nema á baðherbergi sem er flísalagt.
Baðherbergi: baðherbergi með innréttingu með handlaug, salerni, sturtuklefa og rými fyrir þvottavél. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf.
Svefnherbergi: eitt rúmgott svefnherbergi með fataskápum.
Alrými: Stofa: stofa með út gengi út á suður lóð. Eldhús: opið eldhús með innréttingu og eyju með áföstu matborði. Eldhúsið er hluti af opnu rými inn í stofu.
Inngangur: sér inngangur í forstofu.
Geymsla: lítil aflokuð geymsla undir stiga.
Nánari upplýsingar veitir Ólafía lgf. í síma 898 8242 eða á ola@logheimili.is