Baldur fasteignasali – Beinn sími 450-0000 kynnir: Bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á frábærum stað að Barónsstíg 51 í miðbæ Reykjavíkur. Eignin er samtals 86,40 fermetrar og henni fylgir herbergi í kjallara.
Auka herbergi sem hentar til útleigu er í kjallara. Íbúðin skiptist í forstofu/gang, stofu, borðstofu, rúmgott svefnherbergi, eldhús og baðherbergi.
Nánari lýsing:Forstofa/gangur: Tengir rými íbúðarinnar saman.
Eldhús: Snyrtilegt eldhús með góðu skápa- og vinnuplássi ásamt borðkrók.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa.
Borðstofa: Björt og rúmgóð. Möguleiki er á að nýta rýmið sem annað svefnherbergi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskáp.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með baðkari með sturtu.
Herbergi í kjallara: Sérherbergi fylgir eigninni í kjallara og hefur verið leigt út margsinnis. Herbergið býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, s.s. sem vinnuaðstöðu, gestaherbergi eða til útleigu. Sameiginlegt salerni með vaski er í kjallara.
Geymsla: Sérgeymsla fylgir íbúðinni í kjallara.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús er í kjallara þar sem hver íbúð hefur aðstöðu fyrir eigin þvottavél og þurrkara. Þar er einnig sameiginlegt geymslurými sem m.a. hefur verið nýtt fyrir hjól og barnavagna. Aðeins þrjár íbúðir eru í stigaganginum. Sameiginlegur bakgarður með útgengi frá húsinu er á baklóð.
Framkvæmdir á húsinu undanfarin ár:2011 var þak hússins að Barónsstíg 51 endurnýjað.
2023 var sameign og kjallari máluð, raflagnir yfirfarnar og ný ljós sett upp.
2024 var ný útidyrahurð sett upp við bakgarð.
Annað:Um er að ræða vel skipulagða eign á frábærum stað í miðbæ Reykjavíkur. Stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, veitingastaði og kaffihús. Sundhöll Reykjavíkur og Hallgrímskirkja eru í næsta nágrenni og stutt er í Landspítalann, Klambratún og miðborgina.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000
Skoða meðmæli - Verðmat fasteigna - Lúxus fasteignir - Greiðslumat.is - Hvað getur þú keypt