DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 9. nóv. 2026

Byggðarhorn 5

EinbýlishúsSuðurland/Selfoss-801
92.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
973.998 kr./m2
Brunabótamat
60.600.000 kr.
Byggt 2024
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
25243391
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

EIGNIN ER LAUS VIÐ KAUPSAMNING
NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS Í SÍMA 7715211 (milli kl.9 og 18 alla virka daga) EÐA GUDNYTH@ALDIRFASTEINGIR.IS

ALDIR ásamt GUÐNÝJU ÞORSTEINS löggiltum fasteignasala kynnir í einkasölu: 

Fallegt og fullbúið 92,3fm einbýlishús á rúmlega 2,5 hektara búgarða jörð, aðeins um 5 mínútna akstur frá Selfossi. Heimild er fyrir allt að 1.000 fm húsakosti á jörðinni sem býður upp á fjölbreytta möguleika til framtíðar.

Húsið er vel staðsett og umhverfið einstaklega snyrtilegt. Hellulagt er fyrir framan og meðfram húsinu, rúmgott útisvæði er við húsið og stórir skjólveggir skapa gott skjól og næði. Hér sameinast kyrrð og sveitasæla við stutta vegalengd í alla helstu þjónustu á Selfossi.
Lóðin er rúmlega 2,5 hektarar og býður upp á einstakt útsýni yfir Hengilinn og fjallahringinn í kring. Gott beitiland er á jörðinni sem hentar sérstaklega vel fyrir hestafólk.

Helstu kostir
  • Rúmlega 2,5 hektara búgarða jörð
  • Heimild fyrir allt að 1.000 fm húsakosti
  • Aðeins um 5 mínútur frá Selfossi
  • Einstakt útsýni yfir Hengilinn og fjallahringinn
  • Gott beitiland – tilvalið fyrir hestafólk
  • Garðskáli, um 13 fm, með heitum potti ásamt rafdrifnu opnanlegu þaki
  • Stórt og gott bílaplan
  • Danfoss gólfhitastýrikerfi
  • Þrefalt litað gler

Nánari lýsing
Forstofa:
Rúmgóð og björt forstofa.
Stofa, borðstofa og eldhús: Úr forstofu er komið inn í bjart og rúmgott alrými þar sem stórir gluggar hleypa birtu inn og ramma inn fallegt útsýni yfir fjallahringinn. Alrýmið samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúsi og þaðan er útgangur út á veröndina.
Eldhús: Er með góðu skápa- og skúffu plássi, innbyggðum ísskáp, frysti og uppþvottavél.
Svefnherbergi: Eru 3, en 2 þeirra eru með góðum fataskápum.
Baðherbergi: Er rúmgott með skúffum undir vaski, speglaskáp, sturtu og veggföstu salerni. Útgangur er úr baðherberginu og út í garð.
Þvottahús: Er með með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, góðu skápaplássi og innréttingu með skolvaski.

Staðsetning og umhverfi
Einstök staðsetning í sveitasælunni þar sem hægt er að njóta kyrrðar, víðáttunnar og fallegs útsýnis en vera á sama tíma aðeins örfáar mínútur frá allri helstu þjónustu á Selfossi.
Sveitarfélagið Árborg og tilheyrandi veitur sjá um þjónustu við svæðið, meðal annars snjómokstur, sorphirðu, skólaakstur ásamt heitu og köldu vatni.
Jörðin býður upp á gott beitiland og hentar því einstaklega vel fyrir hestafólk eða þá sem dreymir um meira rými og sveitasælu án þess að þurfa að vera langt frá þéttbýli.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vilja Aldir því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (32)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fífuland 7
Á einni hæð
Skoða eignina Fífuland 7
Fífuland 7
800 Selfoss
96,3 m2
Raðhús
413
715 þ.kr./m2
68.900.000 kr.
Skoða eignina Seljaland 20
Skoða eignina Seljaland 20
Seljaland 20
800 Selfoss
88,2 m2
Raðhús
413
713 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Elsugata 15
Á einni hæð
Skoða eignina Elsugata 15
Elsugata 15
815 Þorlákshöfn
97,9 m2
Raðhús
412
694 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Lerkidalur 18
Á einni hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Lerkidalur 18
Lerkidalur 18
260 Reykjanesbær
104 m2
Raðhús
312
720 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin