LIND fasteignasala kynnir bjarta þriggja herbergja 64,4 fm íbúð á 2. hæð við Fífumóa 1c í Reykjanesbæ. Svalir sem snúa til suðurs og sérmerkt stæði á bílaplani. Eignin er vel staðsett, en m.a. er grunn- og leikskóli, verslun o.fl. í göngufæri. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Framkvæmdir síðustu ár skv. seljanda og fyrri fasteignaauglýsingu: Húsið múrviðgert 2020, stigagangur nýlega málaður, húsið málað að utan 2021, gluggar og gler endurnýjað eftir þörfum 2020 og skipt um járn á þaki 2019.
Eignin skiptist í: Forstofu, tvö svefnherbergi, samliggjandi elhús og stofu/borðstofu, baðherbergi ásamt geymslu í kjallara.
Nánari lýsing:
Forstofa: Parket á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Viðar innrétting, með grárri borðplötu, ísskápur, uppþvottavél, bakaroft og helluborð.
Stofa/ borðstofa: Parket á gólfi, útgengt á svalir sem snúa til suðurs.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, baðkar með sturtu, hvít innrétting, speglaskápur með ledlýsingu, tengi fyrir þvotta- og uppþvottavél.
Svefnherbergi I: Parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Rúmgott, parket á gólfi.
Geymsla: Í kjallara ásamt sameiginlegri vagna- og hjólageymslu.
Allar upplýsingar um eignina veitir Tara Sif Birgisdóttir í síma 847 8584 / tara@fastlind.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.