DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:28. nóv. kl 14:30-15:00
Skráð 24. nóv. 2026

Pósthússtræti 7

FjölbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær-230
102.4 m2
2 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
97.500.000 kr.
Fermetraverð
952.148 kr./m2
Fasteignamat
67.000.000 kr.
Brunabótamat
73.150.000 kr.
Byggt 2024
5. hæð af 8
Geymsla 4.3m2
Garður
Svalir
Sturtuklefi
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2524926
Landnúmer
129324
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
05
Hæðir í húsi
8
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
05
Vatnslagnir
Nýtt frá 2024
Raflagnir
Nýtt frá 2024
Frárennslislagnir
Nýtt frá 2024
Gluggar / Gler
Nýtt frá 2024
Þak
Nýtt frá 2024
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Vestursvalir
Upphitun
Hitaveita gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala Reykjanesbæ kynna:

Mjög vandaða íbúð á fimmtu hæð með miklu útsýni ásamt innréttaðri skrifstofu/stúdíó á jarðhæð og sérmerktu bílstæði í bílageymslu.

Íbúðin (74,5 fm) er á fimmtu hæð, forstofa, tvö svefnherbergi, baðherbergi með sturtu og tengi fyrir þvottavél/þurrkara, alrými með eldhúsi/borðstofu/stofu, yfirbyggðar svalir með miklu útsýni móti suðri (5,2 fm).

Á jarðhæð er svo innréttað sérrými (18,4 fm) sem nýtt er í dag sem skrifstofa/stúdíó og er hluti þess með sér baðherbergi með sturtu og er gluggi með útsýni út á sjóinn. Hægt að nýta sem vinnurými á ýmsan máta eða sem aukageymslu.

Geymsla (4,3 fm) er stærri en hefðbundin geymsla að því leiti að hátt er til lofts.

Í bílakjallara er svo sérmerkt einkastæði sem fylgir íbúðinni.

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.is

Punktar um gæði eignar:
Núverandi eigandi keypti íbúðina nýja, án gólfefna, og gerði miklar breytingar á henni sem skila sér í miklum gæðum.
Uppfærði hann eldhúsið með efri skápum upp í loft, setti granítplötur á bæði eldhúsbekki og eyju ásamt því að setja granítveggklæðningu milli efri og neðri skápa.
Bætt var við skápum og settar ljúflokur.
Smiðaður var stokkur utaná eyjuna til að hvíla fætur á þegar setið er.
Einnig voru settar granítplötur í sólbekki/gluggakistur á öllum gluggum, kringum vaska á baðherbergi og einnig við svalahurð, bæði innan og utan niður við gólf.
Á baðherbergi var sérsmíðuð glerhurð fyrir sturtuna.
Á gólfið var svo sett mjög vandað parket, ljóst viðarparket með náttúrlegri áferð.
Sömu gæði voru notuð við innréttingu á skrifstofu/stúdíó herberginu á neðstu hæð, meira að segja sett granít í gluggakistuna.

Punktar um gæði sameignar:
Öll sameignin er hin snyrtilegasta og einstaklega fallega búin sterkum og fallegum teppum.
Allt er málað í mildum en smart litum og lýsing sem styður vel við.
Á neðstu hæð er búið að setja epoxy á gólf allra geymsluganga og vandaðar flísar.
Í bílageymslu er þvottaaðstaða af bestu gerð, bæði háþrýstidæla og hefðbundið vatn, upphengi fyrir kúst og áhöld, rennibraut með tjaldi til að afmarka svæðið við þvott og meira að segja er klakavél þar sem hægt er að sækja sér ís í kalda drykki.
Hjóla- og vagnageymslur eru hinar snyrtilegustu, upphengi komin fyrir hjól.
Upplifun á sameign er eins og komið sé inn á hótel í stórborg.


Húsið var byggt af Reykjanes Investment árið 2024 og var lögð áhersla á að hafa bæði íbúðir og sameign vandaða í alla staði. Helstu gæðastaðlar sem hægt er að miðast við eru aukin lofthæð, þrefalt gler, loftræstikerfi, gólfhiti, sérsmíðaðar Parka-innréttingar, vönduð blöndunartæki og frágang sameignar.

Nánari lýsing:
Komið er inn í fallegt andyri á jarðhæð með mjög smart viðmóti. Lyfta er uppá hæðir og stigagangar snyrtilegir, vel lýstir og bjartir. Inn í íbúinni er fyrst komið í forstofu með fatahengi. Forstofan er opin inn í alrýmið og eldhúsið er næst henni með mjög vandaða innréttingu, blöndu af dökkum við og ljósum sprautulökkuðum skápum/hurðum, sumir með gleri sem sýnir innihald skemmtilega með fallegri lýsingu. Vönduð eldhústæki eru, helluborð, bakaraofn, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Falleg eyja er með sæti fyrir tvo barstóla og góðum geymsluskápum. Granít er á eldhúsbekkjum og vegg milli efri og neðri innréttingar í sama stíl. Einnig er granít á eyjunni. Borðstofan kemur svo í flæði inn alrýmið og endar í stofunni þar sem gengið er út á yfirbyggðar svalir með fallegu útsýni. Svefnherbergin eru tvö, bæði með fataskáp. Baðherbergið er flísalagt á gólfi og veggjum, góð innrétting með vaski, granítplata kringum vask, upphengt salerni, þröskuldarlaus sturta og tengi fyrir þvottavél/þurrkara. Granít er einnig á öllum sólbekkjum við glugga og á sillum bæði innan og utan við svalahurð. Gólfefni íbúðar eru svo í öllum rýmum (utan baðherbergis) ljóst mjög vandað viðarparket með náttúrulegri eikaráferð.

Stór geymsla/vinnurými á jarðhæð (18,4 fm) er innréttað með baðherbergi með sturtuklefa, upphengdu salerni og innréttingu með vaski og granítplötu, flísar á gólfi þar. Hinn hluti herbergis er innréttað í dag með parketi á gólfi, gluggi með opnanlegu fagi og útsýni út á sjóinn. Nýtt í dag sem skrifstofa/stúdíó.

Geymslan (4,3 fm) í kjallara er með mjög góðri lofthæð og nýtist því vel þótt gólfflötur sé ekki stór.

Bílageymslan er með sérmerktu stæði, einnig er vönduð sameiginleg þvottaaðstaða fyrir bíla.

Til viðbótar er svo hjóla- og vagnageymsla.

Nýleg eign í vönduðu húsi með góðri staðsetningu við sjávarsíðuna, stutt frá miðbænum og höfninni. 

Ath. að birtir fermetrar eignar eru 97,2 fm en til viðbótar í söluyfirliti eru fermetrar svalar sýndir með til að glöggva fólk um notkunarmöguleika eignarinnar að öllu leiti.

Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lifum Heima fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.



 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
21/06/202435.000.000 kr.71.400.000 kr.78.8 m2906.091 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
18.4 m2
Fasteignanúmer
2524926
Byggt 2025
Fasteignanúmer
2524926
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B1
Númer eignar
5
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.750.000 kr.
4.3 m2
Fasteignanúmer
2524926
5.2 m2
Fasteignanúmer
2524926
Fasteignalausnir ehf (Lifum Heima)

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tjarnabraut 2 (201)
Mynd 1 úti.jpg
Tjarnabraut 2 (201)
260 Reykjanesbær
91,3 m2
Fjölbýlishús
411
739 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Skoða eignina Risadalur 5A
Skoða eignina Risadalur 5A
Risadalur 5A
260 Reykjanesbær
108,7 m2
Fjölbýlishús
312
621 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Skoða eignina Risadalur 2B - 102
Risadalur 2B - 102
260 Reykjanesbær
121,3 m2
Fjölbýlishús
413
602 þ.kr./m2
73.000.000 kr.
Skoða eignina Risadalur 2E - 203
Efsta hæð
Risadalur 2E - 203
260 Reykjanesbær
122,6 m2
Fjölbýlishús
413
595 þ.kr./m2
73.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin